Fotbolti.net
31.03.11 - 17:07
Elvar Geir Magnússon

Mixu Paatelainen tekinn við Finnlandi (Staðfest)

Mixu Paatelainen.

Mixu Paatelainen.

Canon

Mynd: Getty Images

Mixu Paatelainen hefur yfirgefið skoska liðið Kilmarnock til að taka við landsliði Finnlands. Í tilkynningu frá skoska félaginu segir að Paatelainen hafi ekki getað hafnað kalli frá landsliði eigin þjóðar.
Hann mun taka við finnska liðinu samstundis.

Aðstoðarmaður hans, Kenny Shiels, mun stýra Kilmarnock þegar liðið mætir St Johnstone á laugardag og svo gæti farið að hann verði ráðinn til framboðar.

Paatelainen tók við Kilmarnock í júní í fyrra og náð góðum árangri. Liðið var í fallbaráttu í fyrra en á þessu tímabili er það að berjast í efri helmingnum og hefur spilað skemmtilegan bolta.

Sem leikmaður lék Paatelainen 70 landsleiki. Hann var sóknarmaður og lék fyrir Dundee United, Aberdeen, Bolton, Wolves, Hibernian og Strasbourg.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.