31.03.11 - 16:35
Magnús Már Einarsson
Steinþór Freyr í Sandnes Ulf (Staðfest)


Mynd: Heimasíða Sandnes Ulf


Mynd: Heimasíða Sandnes Ulf
Steinþór Freyr Þorsteinsson hefur gengið til liðs við Sandnes Ulf sem leikur í norsku fyrstu deildinni.
Steinþór Freyr hefur verið í leit að nýju félagi síðan að Örgryte varð gjaldþrota á dögunum.
Steinþór Freyr hefur verið í leit að nýju félagi síðan að Örgryte varð gjaldþrota á dögunum.
,,Sandnes Ulf lítur út fyrir að vera spennandi félag með metnað og þess vegna er þetta góður vettvangur fyrir mig til að sýna mig og sanna,\" sagði Steinþór við heimasíðu félagsins.
Steinþór Freyr gerði samning við Sandnes Ulf út árið 2011 en hann gæti leikið með liðinu gegn Bryne í fyrstu umferð norsku fyrstu deildarinnar um næstu helgi.
Steinþór Freyr gerði samning við Sandnes Ulf út árið 2011 en hann gæti leikið með liðinu gegn Bryne í fyrstu umferð norsku fyrstu deildarinnar um næstu helgi.
Heimild: Heimasíða Sandnes Ulf
