Fotbolti.net
31.03.11 - 21:20
Ívan Guðjón Baldursson

Toni Kroos framlengir við Bayern (Staðfest)

Toni Kroos framlengir við Bayern (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Í dag skrifaði Toni Kroos, 21. árs gamall miðjumaður Bayern Munchen, undir nýjan samning sem heldur honum hjá félaginu til ársins 2015.

Kroos spilaði sinn fyrsta landsleik með Þýskalandi í fyrra og hefur verið í byrjunarliðinu síðan, hann getur spilað hvar sem er á miðjunni og er talinn eitt mesta efni Evrópu.
Kroos kom til Bayern árið 2006 frá Hansa Rostock, aðeins 16 ára að aldri. Ári síðar spilaði hann sinn fyrsta deildarleik fyrir Bayern og var þá yngsti leikmaður allra tíma til að spila fyrir félagið.



Toni Kroos hefur síðan þá spilað samtals 40 deildarleiki bæði með Bayern Munchen og Bayer Leverkusen, en hann var lánaður þangað á síðustu leiktíð og sló svo mikið í gegn að hann var valinn í landsliðshóp Þýskalands fyrir HM í Suður-Afríku síðasta sumar.



,,Ég er mjög ánægður með að Bayern vilji halda mér hjá félaginu, mér líður vel hérna,\" sagði Toni Kroos eftir undirskrift sína.



,,Bayern ætlar sér stóra hluti á komandi árum. Ég er viss um að liðið muni landa titlunum sem aðdáendur okkar óska sér.\"



Sebastían Sævarsson Meyer skrifaði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.