Fotbolti.net
31.12.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Ómar Valdimarsson tekur við KFR (Staðfest)

Ómar Valdimarsson tekur við KFR (Staðfest)
Canon

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Ómar Valdimarsson hefur verið ráðinn þjálfari hjá KFR sem leikur í þriðju deildinni en þetta kemur fram á sunnlenska.is.
Ómar skrifaði undir eins árs samning við KFR en hann hafa Viktor Steingrímsson sér til aðstoðar.

Ómar er frá Selfossi en hann lék í vörninni hjá Fylki við góðan orðstír frá 1995-2002.

Undanfarin ár hefur hann síðan verið aðstoðarþjálfari hjá Selfyssingum en nú mun hann spreyta sig sem aðalþjálfari.

Viktor er öllum hnútum kunnugur hjá KFR enda er einn af stofnendum félagsins.

Heimild: Sunnlenska.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.