Fotbolti.net
31.12.10 - 10:00
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Valinkunnir einstaklingar rifja upp fótboltaárið 2010 - Seinni hluti

Jóhann Berg Guðmundsson.

Jóhann Berg Guðmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fótbolti.net ákvað í tilefni þess að fótboltaárinu 2010 er nú að ljúka að hafa samband við valinkunna einstaklinga og báðum við þá um að segja okkur hvað þeim þætti eftirminnilegast í knattspyrnunni 2010, bæði hér heima og erlendis.
Hér að neðan má sjá afraksturinn en þetta er síðari hlutinn af tveimur.

Smelltu hér til að sjá fyrri hlutann


Jóhann Berg Guðmundsson
Leikmaður AZ Alkmaar og landsliðsmaður

Innlent: Það sem kemur fyrst upp í hugann hjá mér er Íslandsmeistaratitilinn sem Blikar lokuðu auðveldlega og svo framgangan hjá okkur í U21. Það var alltaf klárt að Blikar myndu taka þann stóra á komandi árum enda með besta þjálfarann á Íslandi. Hefði viljað sjá Alfreð Finnboga klára gullskóinn en hann er eins og 10-11 hann kann ekki að loka. Þá var þetta frábært afrek hjá okkur í U21, skemmtilegur og samstillur hópur sem hafði markmið sem náðust og stefnir nú enn hærra á EM næsta sumar.

Erlent:
Árið var viðburðaríkt hjá mér í Hollandi, komst inn í aðalliðið og var fastamaður framan af. Gekk vel en hef verið að glíma við meiðsli en stefni á að koma enn sterkari til leiks á nýju ári. Hvernig Spánn kláraði HM þó svo að þetta mót hafi verið ansi lélegt. Þá er gaman að sjá hvernig besti leikmaður heims, Cristiano Ronaldo spjarar sig á Spáni. Það er á hreinu að hann og Mourinho klára La Liga eftir áramót þrátt fyrir rasskellinguna á Camp Nou. Einnig er gaman að sjá hversu opin enska deildin er orðin og tel ég að hún verði ruðalega spennandi í lokinn.


Elísabet Gunnarsdóttir
Þjálfari Kristianstad

Innlent:
U-21 landslið Íslands stendur upp úr á árinu ekki bara með frábærum árangri heldur þótti mér gaman að sjá Íslenskt lið með alvöru \"attitude\" þjálfarar og leikmenn þorðu a setja pressu á sig sjálfa með því ákveðnum yfirlýsingum áður en leikirnir voru spilaðir t.d. fyrir leikinn á móti Þýskalandi og svo fyrir Skotaleikina. Þetta hafði áhrif á áhuga almennings hér og erlendis. Standa síðan undir stóru orðunum gerir afrekið enn stærra. ÍBV kom þvílíkt á óvart í pepsideild karla og Óli Kristjáns sýndi styrk sinn með Breiðabliksliðið, stórkostlegur og sögulegur árangur þar á bæ. Valur vann tvöfalt í kvennaboltanum annað árið í röð, afrek sem seint verður toppað.

Erlent:
Gylfi Sigurðsson seldur fyrir einhverja brjálaða dollara og maður heyrði fullt af fólki tala um hann sem bólu sem myndi springa. En hann stingur upp í allt og alla og skorar \"í hvert skipti\" sem hann spilar og fær united, óumdeilanlega besta lið í heimi, til að sýna sér áhuga. Vafasömu raddirnar um Gylfa hafa þagnað. Þýskaland var frábært á HM þrátt fyrir flottan sigur Spánar. Malmö sýndi fáranlega mikla yfirburði í kvennadeildinni í Svíþjóð með Þóru Helgadóttur fremsta í flokki sem einn besta leikmann deildarinnar. Marta besta knattspyrnukona í heimi setti þriðja liðið á hausinn fjárhagslega og WPS deildin hangir á bláþræði. 2010 árið sem stuðningsmenn Liverpool viðurkenndu loksins sjálfir út um víðan völl að liðið er sorglegt. Sölvi Geir Ottesen og hans lið í Champions leauge, ávallt ánægjulegt fyrir Íslendinga að eiga fulltrúa þar.


Alfreð Finnbogason
Besti leikmaður Íslandsmótsins og landsliðsmaður

Innlent:
Það sem stóð uppúr á góðu ári fyrir mér persónulega var klárlega að vera hluti af því liði sem nældi sér í fyrsta Íslandsmeistaratitil í sögu Breiðabliks í mfl. karla. Einnig var mikill heiður að vera valinn bestur í deildinni af leikmönnum og að vera hluti af U-21 árs liðinu sem náði að komast á lokamót í fyrsta sinn. Spila fyrsta landsleikinn fyrir framan 33 manns í Kórnum var draumur að rætast og að skora svo á móti Ísrael úti var eftirminnilegt. Ásamt því var virkilega skemmtilegt að vera markahæsti hvíti maður deildarinnar í ár og að fá silfur í sekkinn fyrir það. Vistaskipti til Lók-eren með von um spennandi tíma framundan þar. Síðast en ekki síst var ógleymanlegt að vera kosinn skemmtilegasti leikmaðurinn af hlustendum Rásar 2, það stendur uppúr á viðburðarríki ári 2010....

Erlent:
Það sem stóð uppúr á erlendri grundu á þessu ári var sigur fótboltans með sigri Spánverja á annars leiðinlegu HM og kennslumyndband í fótbolta sem tekið var upp á Camp Nou 29. nóvember í sigri Barcelona á Real Madrid 5-0.


Gísli Einarsson
Sjónvarpsmaður á RÚV

Innlent:
Frekar óvæntur, en afar ánægjulegur, sigur Breiðabliks á Íslandsmóti karla í knattspyrnu stendur að sjálfsögðu upp úr. Sigurinn var vissulega verðskuldaður og tímabært að Blikarnir fengju nafn sitt á bikarinn. Ég hefði vissulega unnt Vestmannaeyingum titlinum en þeirra árangur er líka glæsilegur. Fyrir þessum liðum fara tveir flottir þjálfarar, (Ólafur Kristjánsson og Heimir Hallgrímsson) hvor með sinn stíl, sem eru vel að árangrinum komnir. FH ingar voru vissulega nærri titlinum en það kom svosem engum á óvart. Deildin var í heild nokkuð skemmtileg og spennandi í sumar og slatti af leikmönnum sem glöddu augað.

Vonbrigði sumarsins voru hinsvegar þau að mínir menn á Skaganum skildu ekki drattast upp um deild. Ég er hinsvegar bjartsýnn á að þeirra tími sé alveg að koma! Það voru líka vonbrigði að Fjarðarbyggð skildi falla niður í aðra deild sem þýðir að enn verður bið á því að fá lið af Austurlandi í Úrvalsdeild sem mér þykir alveg tímabært. Á móti kom að það kom skemmtilega á óvart að Þórsarar skildu komast í Úrvalsdeildina en persónulega finnst mér aldrei of mikið af landsbyggðarliðum í efstu deild. Frábær árangur Víkinga úr Ólafsvík í 2. deildinni og bikarkeppninni var einnig ánægjuefni. Sömuleiðis að BÍ/Bolungarvík skildi fylgja þeim upp í fyrstu deildina. Ég bíð hinsvegar ennþá spenntur eftir því að Skallagrímur úr Borgarnesi taki flugið á ný en liðið er alveg búið með sinn kvóta í neðstu deild að mínu mati.

Hjá konunum kom fátt á óvart. Það er alltof mikill munur á getu kvennaliðanna og hefur svosem alltaf verið. Frammistaða Þórs/KA er hinsvegar það sem gleður kvað meðst og kominn tími til að ógna einveldi Vals, Breiðabliks, KR og Stjörnunnar. Gott gengi íslenskra knattspyrnukvenna á erlendri grund og frammistaða kvennalandsliðsins er hinsvegar mikið gleðiefni.

Toppurinn á knattspyrnusumrinu, frá mínum bæjardyrum séð, var reyndar þáttaka í leðjuboltaleik á vel heppnuðum knattspyrnudegi Skallagríms og þáttaka í Pollamótinu á Akureyri með stórliði Neista frá Hofsósi.

Erlent:
Á erlendum vettvangi bar að sjálfsögðu hæst HM í fótbolta. Þar voru náttúrulega skemmtileg tilþrif og ég hafði ekki mikið út á úrslitin að setja. Spánverjar voru vel að sigrinum komnir þótt ég hefði heldur kosið að Hollendingar tækju gullið. Mér hefði líka þótt það í góðu lagi að Urugvæ hefði spilað til úrslita. Þeir voru búnir að vinna fyrir því Forlan og félagar og voru í raun það lið sem kom mest á óvart í keppninni. Vonbrigðin voru hinsvegar slakur árangur Englendinga en í ljósi sögunnar þurfti það svo sem ekki að koma svo mikið á óvart.

Það gleðilegasta á erlendum vettvangi var að sjálfsögðu góður árangur minna manna á Englandi, Tottenham, en þeir tryggðu sér sæti í Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn og hafa farið á kostum þar það sem af er. Koma Van Der Vart til liðsins var líka mikið gleðiefni og hans frammistaða það sem af er tímabilinu. Snilldartaktar Gareth Bale standa líka upp úr en hann er tvímælalaust leikmaður ársins á Englandi í mínum huga og hann er bara rétt að byrja. Eftir fremur mögur ár hefur verið býsna ánægjulegt að fylgjast með Tottenham á árinu 2010 og það þarf ekkert að rökræða það neitt að ekkert lið á Englandi spilar skemmtilegri bolta í dag.

Ég skal líka viðurkenna að ég græt krókódílatárum yfir gengi Liverpool en ég á frekar bágt með að skilja þá sem láta sér koma það á óvart að Liverpool sé ekki í toppsætinu!. Liðið er einfaldlega ekki með góðan leikmannahóp. Þeir eru með þrjá til fjóra mjög góða leikmenn, sem n.b. hafa ekki verið í toppformi á árinu, en hitt eru bara meðaljónar. Slök frammistaða Chelsea að undanförnu kemur hinsvegar meira á óvart, ánægjulega á óvart verð ég að viðurkenna. Ég græt það nefnilega aldrei þegar lið sem ætla að vinna titla á tékkheftinu misstíga sig. Ég vil líka nefna í því sambandi að gengi Blackpool er það sem hefur kannski komið mest á óvart á Englandi á árinu. Blackpool spilar kannski ekki neinn sambabolta en þar leika menn hinsvegar með hjartanu og þar er það baráttuviljinn og leikgleðin sem skilar árangri en ekki aurarnir. Ætli það væri ekki hægt að fá allan leikmannahóp Blackpool fyrir sama pening og Drogba einan?

Ég vil einnig geta þess að hið hugum stóra smálið Halifaxhrepps er á gífurlegri uppleið um þessar mundir en þeir Faxar tróna nú á toppi norðurriðils Evo stik deildarinnar (7 . deild á Englandi) og það hlýtur að vera öllum knattspyrnuunnendum mikið gleðiefni. Halifaxhreppur er sem stendur með sex stiga forystu á Colwyn Bay og þrjá leiki til góða þannig að framtíðin er afar björt.

Ég hef ekki miklar áhyggjur af fótboltanum í öðrum löndum en á Íslandi og Englandi. Þó fylgist ég að sjálfsögðu með gengi íslenskra leikmanna hvar sem þeir eru í heiminum. Það er að sjálfsögðu ekki annað hægt en að gleðjast yfir frábærum árangri Gyfla Sigurðssonar í Hoffenheim. Það verður fróðlegt að fylgjast með honum á nýju ári, sem og mörgum öðrum ungum íslenskum spörkurum. Meðal annars „Borgnesingnum“ Rúrik Gíslasyni en ég hef trú á að hann eigi eftir að láta til sín taka í nýju landi á nýju ári. Síðan vona ég að sjálfsögðu að Eiður Smári rífi sig upp eina ferðina enn. Hann á náttúrulega ekki heima hjá liði sem spilar leiðinlegasta fótboltann í þessu sólkerfi!


Lárus Orri Sigurðsson
Þjálfari KF

Innlent:
Lið frá norðurlandi aftur meðal bestu.
Breiðablik vann sinn fyrsta íslandsmeistaratitil.
Framkoma KSÍ gagnvart A landsliði Íslands fyrir leikinn gegn Portugal.

Erlent:
Öll vonbrigðin með England og skrípalæti Frakka á HM.
Mourinho (The special one) og hans tímabil með Inter.


Kristinn Jakobsson
FIFA-dómari

Innlent:
Það sem stendur upp úr innanlands að mínu mati er frækileg frammistaða Íslandsmeistara Breiðabliks - virkilega verðskuldaður sigur þeirra en þess ber að geta að það var mjög tæpt og spennandi, eingöngu meiðslasaga FH-inga varð til þess að Hafnarfjarðarmafían steig aðeins sigurvalsinn eftir Visa-bikarkeppnina. Íslandsmótið var reyndar mjög skemmtilegt þrátt fyrir of margar \"pásur\" vegna ýmissa annara atburða. Þess ber að fagna að fá lið frá höfuðstað norðurlands aftur í efstu deild og klárlega verða Þórsarar sterkir á heimavelli á komandi tímabili. Kvennaboltinn var svolítið fyrirséður enda hafa Valsstelpur töluverða yfirburði eins og úrslit allra móta sýna. Þess ber þó að geta að í sumar sáum við kvenndómara dæma í efstu deild kvenna og vonandi mun sú ánægjulega þróun verða til þess að kvenndómurum muni fjölga í komandi framtíð - Stelpur, það er gaman að dæma... Það er ekki hægt annað en að lasta örfáa en hávaðasama forráðamenn og þjálfara fyrir mjög óíþróttamannlega hegðun í sumar, það verður að segjast eins og er að þegar þessir aðilar koma fram í fjölmiðlum og blása gegn dómgæslu þá eru þeir ekki að gæða knattspyrnuna. Það er engum hollt að vera alltaf sammála og sitt sýnist hverjum um ákveðinn atvik í leikjum og við dómarar þrífumst á gagnrýni en það verður að gera kröfu um að þeir sem stýra knattspyrnuliðum í efsta gæðaflokki sýni almenna háttvísi og ræði málin að fagmennsku - það ættu allir að fara í sömu átt ef menn vilja bæta dómgæsluna. Þetta gamla góða mun alltaf lifa, \"Það fer enginn leikur fram án dómara\" - hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Ég vona að þeir taki til sín sem eiga. Ég get heldur ekki sleppt því að nefna \"skrípa\" þáttinn Pepsi-mörkin, þar sem að annars ágætir þáttastjórnendur eyddu að langmestu tíma þáttanna að ræða krítísk atvik (hugsanleg \"dómaramistök\") í leikjum sumarsins frekar en að láta það sem skiptir aðalmáli að mínu mati knattspyrnuna vera í aðalhlutverki. En til að enda þetta á skemmtilegu nótunum þá krydduðu Stjörnumenn fótboltann með óvenjulegum fögnum, Pepsi-deildin og 1. deildin voru afar spennandi og margir frábærir leikir, óvænt frammistaða Eyjamanna, þung ský á Hlíðarenda og í Frostaskjólinu, léttskýjað í Kópavoginum og síðast en ekki síst mjög öflug frammistaða dómara.... 2011 verður bara betra en 2010.

Erlent:
Frábær fótboltaveisla allt árið. Barcelona sannaði að knattspyrnan er list. Ótrúlegar uppákomur á leikmannamarkaðinum þar sem peningar skipta orðið öllu máli. Frábær frammistaða U21 í Evrópukeppninni. Margar jákvæðar og skemmtilegar fréttir af íslenkum leikmönnum erlendis. Eiður Smári og sagan endalausa. Gylfi Sig. og sagan endalausa vonandi... Mjög skemmtilegt ár hjá mér og mínu teymi í fjölmörgum leikjum erlendis, með lokaleik ársins á Anfield - ógleymanleg stund (ath, ég er þó ekki Poolari), Að ógleymdu mjög áhugaverðu heimsmeistaramóti í S-Afríku þar sem að Spánverjar sigruðu verðskuldað.


Kristján Guðmundsson
Þjálfari Vals

Innlent:
Breiðablik verða Íslandsmeistarar í fyrsta sinn, ávöxtur þeirra af góðri vinnu.
Fimmfaldar meistarar Vals í kvennaboltanum, glæsilegt afrek.
Akureyri á að nýju lið í efstu deild karla, magnaður lokakafli 1.deildar
Knattspyrnuþjálfarafélagið fjörutíu ára og starfið í félaginu öflugt sem sást greinilega í glæsilegri fertugsafmæliráðstefnu / afmælisveislu
U-21 árs landsliðið og nálgun þeirra á verkefni sín koma þeim í lokakeppni EM
Íslenskir dómarar að fá sífellt stærri verkefni erlendis sem gerir þá öflugri á heimavelli, þar er verið að vinna góða vinnu.
Víkingar í Ólafsvík tapa einum af ca. 40 leikjum sínum í sumar, þó ekki hafi þeir bætt prósentuárangur Þórsara frá árinu 2000 í 2.deildinni!
Útflutningur íslenskra knattspyrnumanna er nú að ógna útflutningi á eðalhrossum, er það góð þróun eða slæm?

Erlent:
Færeyjar eru 18 talsins og er búið á 17 þeirra , amk hluta úr ári...
Internazionale endurtekur leik Barcelona frá fyrra ári og vinnur alla mögulega titla heima, í Evrópu og síðan HM félagsliða.
Malmö FF vinnur sænsku deildina og spila flottan fótbolta, kenndan við sókn!
FC Köbenhavn vinnur sig upp úr riðlinum í Meistaradeildinni fyrst danskra liða, hörkulið
Sem betur fer vinnur Spánn bragðdauft HM
FIFA og hversu peningar geta sýkt umhverfi sitt.
Þjálfari heimsmeistara félagsliða rekinn þremur dögum eftir titilsigurinn, segir ýmislegt um eðli starfsins og starfsöryggi þjálfara

Með þökk fyrir knattspyrnuárið 2010 ,,, og eins og skáldið orti:
\"Eta kneckebröd
havregrynsgröt
att tála
motgángar och nederlag
blir man stark av.
Vi i Lackeby GoiF
er javligt starka.\"


Pálmi Rafn Pálmason
Leikmaður Stabæk og landsliðsmaður

Innlent:
Breiðablik Íslandsmeistari karla. Til hamingju með það Blikar! Skemmtilegt að fá nýtt lið til þess að taka við titlinum og þá sérstaklega þegar jafn ungt og spennandi lið einsog Breiðablik gerir það.
Þórsarar komnir upp í úrvalsdeild, sem er mjög gott að því leyti að norðurlandið er þá komið aftur í úrvalsdeildina!

Erlent:
HM í Suður-Afríku var algjörlega hápunkturinn. Magnaður sigur Spánverja þar sem þeir sýndu og sönnuðu að þeir eru með besta landslið í heiminum, án efa. Væri aftur á móti gaman að sjá Barcelona liðið taka þátt í HM landsliða, ekki frá því að þeir færu allavega í úrslitaleikinn.


Þórir Hákonarson
Framkvæmdastjóri KSÍ

Innlent:
Árangur U21 landsliðs karla á árinu og frábær stuðningur þjóðarinnar við liðið sem sýndi sig svo sannarlega í umspilsleik við Skota á Laugardalsvelli. Árangur þessa liðs verður lengi í minningunni og ég er sannfærður um að þeir eiga eftir að vekja enn meiri athygli þegar kemur að úrslitakeppninni í Danmörku í júní. Árangur annarra yngri landsliða er einnig minnistæður, bæði yngri lið kvenna og U17 karla komin í milliriðla í EM2011 sem þýðir að við eigum ágæta möguleika á að fleiri yngri landslið fari í lokakeppni á árinu 2011. Stórgóður árangur Ólafs Kristjánssonar með lið Breiðabliks stendur líka uppúr, skemmtilegt lið þar á ferð sem verðskuldað landaði Íslandsmeistaratitlinum í Pepsi-deild karla í fyrsta skipti. Ákaflega vel heppnað mótahald íslenskra liða í Evrópukeppni, Breiðablik í riðlakeppni kvenna í meistaradeildinni og Keflavík í riðlakeppninni í Futsal, vel að verki staðið þar og fékk kannski ekki eins mikla athygli og verðskuldað var. KS varð allt í einu KF.

Erlent:
Frábær knattspyrna þýska landsliðsins á HM í S-Afríku sem bjargaði annars frekar tíðindalitlu móti og undarleg breyting á leikstíl Hollenska landsliðsins sem þó fleytti þeim í úrslitaleikinn á HM. Góður árangur íslenskra knattspyrnukvenna á erlendum vettvangi vakti jafnframt athygli þar sem flestar okkar bestu leikmanna voru í eldlínunni með liðum sínum og unnu slatta af titlum.


Rakel Hönnudóttir
Leikmaður Þór/KA og landsliðskona

Innlent:
Svo við byrjum þetta á persónulegum nótum þá stóð uppúr hjá okkur í Þór/KA að ná besta árangri liðsins frá upphafi, ná 2. sætinu í deildinni og komast í fyrsta skipti í evrópukeppnina. Í karlaboltanum var skemmtilegt að fylgjast með ungu og efnilegu liði Breiðabliks vinna deildina í fyrsta skiptið. Árangur U-21 árs landsliðs karla var einnig mjög eftirminnilegur og voru strákarnir þar að standa sig með mikilli prýði.

Erlent:
Það sem situr sem fastast í minninu er að í sænsku kvennadeildinni urðu íslendingar bæði deildarmeistarar og bikarmeistarar, Þóra B. Helgadóttir og Dóra stefánsdóttir urðu sænskir meistarar með Malmö og Edda Garðarsdóttir og Ólína Viðarsdóttir urðu bikarmeistarar með Örebro. Svo var HM hjá körlunum og það er alltaf gaman að fylgjast með því. Einnig var sérstakt að fylgjast með undarlegri hegðun franska landsliðsins þegar þeir svo eftirminnilega neituðu að mæta á æfingar, eitthvað sem maður hélt að myndi ekki gerast í lokakeppni heimsmeistaramóts.


Leifur Garðarsson
Þjálfari Víkings R.

Innlent:
Af innlendum vettvangi ber að sjálfsögðu hæst hjá mér öruggur sigur Víkinga í 1. deildarkeppninni. Andstæðingar okkar lögðu sig alla fram um að tala allar væntingar í átt til okkar Víkinga og hugsuðu minna um sjálfan sig. Það gekk sem betur fer svo vel að við unnum deildina með öruggum 5 stigum.
Árangurinn er að sjálfsögðu laun erfiðis síðustu tveggja ára við að bæta allt sem viðkemur knattspyrnunni í Víkinni, innan vallar sem utan. Það eru því margir sem eiga stóran hlut í því að koma Víkingi aftur á meðal þeirra bestu.
Ég varð líka ánægður að sjá mína gömlu félaga í Þór fylgja okkur upp í Pepsi deildina. Þó það væri nú ekki nema fyrir það að fá tækifæri til að skemmta sér á vellinum með vinum mínum Mjölnismönnum að ári.
Ég samgladdist að sjálfsögðu æskufélaga mínum Ólafi Helga þegar hann stýrði Breiðabliki til sigurs í Pepsi deildinni og auðvitað Kaplakrikatröllunum þegar FH vann VISA bikarinn.

Af persónulegum nótum þá fylltist ég auðvitað miklu föðurstolti þegar Garðar Ingi sonur minn lék sinn fyrsta leik í aðalkeppni meistaraflokks. Það gerðist í VISA bikarnum í leik Víkinga gegn Hornafjarðarstórveldinu Sindra í Víkinni. Hann gerði meira að segja flott mark og fagnaði að hætti Tim Cahill.
Ekki varð ég síður stoltur þegar Anton Ingi sonur minn hampaði Íslandsbikarnum í 3. flokki á Fjölnisvelli sem fyrirliði FH inga. Þar er hann hluti af flottum hópi efnilegra drengja sem eiga framtíðina fyrir sér.

Erlent:
Af erlendum vettvangi er það aðallega tvennt sem stendur upp úr að mínu mati, þó það tengist raunar Íslendingum í báðum tilvikum.
Gylfi Þór Sigurðsson er réttkjörinn knattspyrnumaður ársins. Gylfi stóð sig feykilega vel hjá Reading og í leikjum U-21 landsliðsins og hefur byrjað dvöl sína með öflugum hætti hjá þýska liðinu Hoffenheim. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum mínum hefur hann þegar öðlast kunnáttu til að bjóða góðan daginn og panta sér pastamáltíð á þýskri tungu en Gylfi er mikill aðdáandi talsettra þýskra bíómynda. Gylfi, sem æfði með okkur Víkingum í sumarleyfi sínu, er gott dæmi um leikmann sem leggur mikið á sig aukalega til að ná árangri og það hefur svo sannarlega skilað sér hjá pilti.
Hólmfríður Magnúsdóttir er einnig réttkjörin knattspyrnukona ársins. Fríða stóð sig frábærlega í bandarísku atvinnumannadeildinni í liði Philadelphia og lék margar stöður yfir tímabilið. Það sýnir líka hversu fjölhæfur og öflugur íþróttamaður Fríða er að þjálfarinn treysti henni betur en öðrum leikmönnum liðsins til að leysa hinar ýmsu leikstöður. Þá var Fríða í algjöru lykilhlutverki hjá íslenska kvennalandsliðinu og markahæsti leikmaður þess. Gaman einnig að sjá hversu dugleg hún er að ferðast um landið og hitta ungar knattspyrnudömur við æfingar.
Fríða, líkt og Gylfi Þór, leggur mikið á sig við aukaæfingar sem skila sér í bættum leik og betri árangri.

Auk árangurs þessara tveggja ungu íslensku afreksmanna mætti svo nefna frábær árangur Mourinho og Inter Milan á árinu, stórkostlegt samspil Barcelona á löngum köflum, sigur Spánverja á HM og stórleikur kolkrabbans Páls frá Oberhausen.


Aron Jóhannsson
Besti leikmaður 1.deildar

Innlent:
Það sem kemur fyrst upp í huga mér er klárlega að sjá stærsta titil landsins í höndum minna manna í Fjölni þegar þeir urðu íslandsmeistarar í Fútsal og tilvonandi evrópumeistarar.

Það sem stendur uppúr persónulega hjá mér er að hafa verið valinn bestur, efnilegastur og verið markahæstur í 1.deildinni í sumar og síðan að hafa haldið á vit ævintýranna til AGF í Danmörku.

Blikarnir unnu deildina í fyrsta skiptið og Alfreð vann allt og síðan seldur til Lokeren i Belgiu. Strákarnir í Breiðablik eru klárlega það sem stendur uppúr í íslensku deildinni í sumar þar sem þeim tókst loksins að koma sér upp úr því að vera efnilegir og voru einfaldlega bara bestir í ár.

Síðan er það árangurinn hjá U-21 landsliðinu. Þeir gerðu grín af Þýskalandi og lentu í öðru sæti í sterkum riðli. Siðan voru tveir auðveldir leikir við rauðhærðu þjóðina í Skotlandi og miði á úrslitakeppni EM .(STAÐFEST)

Erlent:
Hversu auðvelt það var fyrir Spánverjana að verða heimsmeistar.
Horfa á meistaradeildina og leita að riðlinum sem Liverpool er í.
Ji Sung Park að tröllríða ensku úrvalsdeildinni og orðinn lykilmaður Man Utd.
Hægri löppin á Gylfa Sig líkt við king Beckham.
Inter Milan og Mourinho óstöðvandi.
Inter Milan og Benitez með buxurnar niður um sig.
Mario Balotelli næstbestur í heimi.
Franska landsliðið eins og það leggur sig drullaði á sig.


Gunnar Jarl Jónsson
Besti-dómari Pepsi-deildar karla

Innlent:
Frábært sumar í alla staði. Pepsí-deildin var virkilega flott í ár. Mikil gæði í deildinni og endaði deildin á dramatískan hátt með lokaumferð þar sem allt gat gerst. Gerist ekki betra. Glæsilegur árangur hjá Breiðablik sem spilaði virkilega flottan bolta. Í 1. deildinni var ótrúlega gaman að sjá Leikni standa sig jafnvel og raun bar vitni. Þeim tókst ekki að klára ætlunarverkið eftir frábært sumar en mæta reynslunni ríkari að ári. Þórsarar voru með áhugavert lið og státa sig af einum skemmtilegasta heimavelli landsins með stuðningsmenn sem vert er að fylgjast með. Víkingar sýndu mikinn styrk og verður gaman að fylgjast með þessum tveimur liðum á næsta tímabili.

Árangur Víkings Ólafsvík var eftirtektarverður og stórglæsilegur. Þess vegna finnst mér enn skrýtnara að sjá einhverja leikmenn liðsins mögulega fara frá liðinu þegar meðbyrinn er slíkur. Ejub Purecevic sýndi styrk og gæði þetta sumarið. Einnig vakti vösk framganga \"Hobbitans\" athygli en hann fékk verðskuldað spjald í viðureign Víkings Ólafsvíkur og Hattar í sumar. Gaman að því. KB sýndi flotta takta í 3. deildinni með Þórð Einarsson fremstan í broddi fylkingar. Án nokkurs vafa er hann sammála því. Árangur U21 er auðvitað stórbrotinn og deginum ljósara að haldið verður til Danmerkur næsta sumar að kíkja á liðið. Þvílíkur fjöldi af frábærum fótboltamönnum. Verð að minnast á glæsilegan árangur Freys Alexanderssonar með kvennalið Vals. Glæsilegur árangur í alla staði og góður endir hjá honum með liðið. Verður gaman að sjá hann stíga næsta skref sem aðstoðarmaður Kristjáns Guðmundssonar hjá Val. Í kvennaboltanum var það líka að frétta að við fengum að sjá kvendómara stíga sín fyrst skref. Reglulega ánægjulegt fyrir knattspyrnuna.
Áfram íslensk knattspyrna!

Erlent:
Stórbrotinn sigur Barcelona á Real Madrid. Stórkostlegur sigur fyrir knattspyrnuna í besta knattspyrnuleik sem undirritaður hefur séð. Besta frammistaða knattspyrnuliðs síðan knattspyrnuíþróttin var fundin upp.

Eðli málsins samkvæmt verð ég að minnast á dómgæslu. Annars veit ég að einhverjir yrðu hryggbrotnir. Frammistaða Ravshan Irmatov eða \"Irma\" eins og hann er kallaður meðal gárunganna hér á landi verður að teljast hápunktur HM 2010 í Suður Afríku. Keppnin með eindæmum tilþrifalítil og þar af leiðandi stendur hann upp úr. 33 ára Úzbekisti sem sýndi stórbrotin tilþrif og jók gæði allra sinna leikja með leikskilningi og persónuleika. Þá hef ég lokið dómgæsluhlutanum og yfirreið minni yfir knattspyrnuna á erlendum vettvangi.


Gunnleifur Gunnleifsson
Markvörður FH og íslenska landsliðsins

Innlent:
Bikarmeistaratitill okkar FH-inga er virkilega sterk og ánægjuleg minning þar sem að við gengum frá sterku liði KR í úrslitaleik ásamt því að sigra Breiðablik í 32.liða úrslitum eftirminnilega. Einnig var gaman að taka þátt í leiknum gegn Víking frá Ólafsvík þar sem að fjölmargir íbúar Snæfellsnes mættu í Krikann til að styðja fanta gott lið Víkings í 4.liða úrslitum. Íslandsmótið fór ekki eins og við vildum. Breiðablik sigraði og það verðskuldað. Hinsvegar var athyglisvert að fylgjast með umræðuni eftir mót þar sem að flestir töluðu um að blikar hefðu verið frábærir í allt sumar en við áberandi slakir. Þrátt fyrir það urðum við jöfn að stigum í enda móts. En auðvitað segi ég til hamingju blikar. Mínir menn í fyrstu deildini voru með mikið breytt lið og nýjan þjálfara, og átti í erfiðleikum stærstan hluta móts í sumar. Ég hef mikla trú á því að HK liðið geri harða atlögu að Pepsí deildarsæti á næsta ári. Það voru mikil vonbrigði að fá ekkert útúr landsleikjum haustsins, því okkur fannst við spila að stórum hluta nokkuð vel, en eins og margoft hefur komið fram að þá eru það stigin sem skipta máli í þessu. Við erum staðráðnir í því að gera betur á komandi ári og höfum fulla trú á því sem við erum að vinna að. Við biðjum auðvitað landsmenn alla um að standa við bakið á okkur og hjálpa okkur að ná því sem við vitum að við getum. Að síðustu er við hæfi að óska u-21 liði okkar til hamingju með frábæran árangur í sínu verkefni. Það eru allir að bíða eftir stórmótinu á næsta ári þar sem að þessir efnilegu strákar hafa alla burði í að fara langt.

Erlent:
HM keppnin var stærsti fótbolta atburður ársins. Keppnin var ekkert sérstök miðað við fyrri keppnir og fyrir mig persónulega var hún óspennandi þar sem að mínir menn í Svíþjóð komust ekki í lokakeppnina. Man City ríkasta lið í heimi og mitt lið í ensku virðist hafa það að markmiði að kaupa engan leikmann sem kostar undir 20.milljónum punda og þiggur ekki minna en 150.000 pund á viku og þá skiptir það engu hver leikmaðurinn er. Ég hef samt trú á að mínir menn eigi eftir að setja pressu á titillinn árið 2011. Annað er ekki ásættanlegt. Að endingu vil ég nefna hér að Pétur Viðarsson varnarmaðurinn þokkafulli í FH hefur sett á laggirnar Fan club fyrir hrokkinhærða hafsentin David Luiz sem vinnur sína vinnu hjá einu besta félagi heims Benfica. Hægt er að adda Pétri á Facebook til þess að skrá sig í klúbbinn. Þess má geta að við Pétur erum stærstu stuðningsmenn Benfica á Íslandi.

Guð blessi ykkur og áfram Ísland!


Elvar Geir Magnússon
Annar af stjórnendum útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X-inu

Innlent:
Gríðarlega ferskir vindar blésu inn í íslenskan fótbolta á árinu og fjöldi efnilegra leikmanna stimpluðu sig inn af miklum krafti. Ég sá alla heimaleiki U21 liðsins í þessari mögnuðu undankeppni og fylgdist með ótrúlega hraðri þróun liðsins, hvernig það í raun varð að strákunum okkar. Ég skal viðurkenna það að ég sá þessa velgengni ekki alveg fyrir eftir fyrsta leik liðsins.

Nú eigum við leikmenn sem hafa kveikt von um að á næstu árum sé jafnvel hægt að horfa á íslenska A-landsliðið með stolti. KSÍ er með gull í höndunum sem það má ekki glopra. Sambandið þarf að sjá til þess að þessir strákar fái þá umgjörð og umhverfi sem þeir nauðsynlega þurfa. Það þarf líka ferska vinda utan vallarins.

Erlent:
Jose Mourinho hélt áfram að sýna snilli sína og vann allt sem hægt var að vinna með Inter. Fékk þó skell með Real Madrid gegn Barcelona í einum besta fótboltaleik sem ég hef augum litið. Af erlendum vettvangi er þó minnistæðast þetta skot Gylfa Þórs Sigurðssonar upp á stjörnuhimininn. Í fyrra var hann að spila með Crewe en í dag er hann besti knattspyrnumaður sem við eigum. Landsliðsþjálfarinn okkar á reyndar ummæli ársins þegar hann sagði að Gylfi væri ekki einn af 20 bestu leikmönnum sem Ísland ætti... ummæli sem hann vonar að allir hafi gleymt í dag.


Gunnlaugur Jónsson
Þjálfari KA

Innlent:
Fyrir mig sjálfan þá var þetta ár sannkallaður rússibani, ég tók við liði Vals og þegar sú ráðning komst í loftið var vægast sagt allt vitlaust og ekki var minna fjaðrafok undir lok tímabilsins í ár þegar stjórnin fór fram á afsögn mína. Ég kláraði nú tímabilið, en frammistaða liðsins á tímabilinu var vissulega upp & niður. Þegar á reyndi eftir tímablilið var ekki þeirra vilji að halda starfskröftum mínum og við tók 2ja mánaða stapp um starfsflokasamning. Þegar upp var staðið fór ég í gegnum mikinn skóla á þessu ári sem ég mun búa að. Ég hafði úr nokkrum starfstilboðum að velja og ákvað að halda til Akureyrar og taka við liði KA. Það verður mjög spennandi verkefni að búa það lið undir mjög sterka 1. deild á næsta ári.

Breiðablik er lið ársins, Ólafur þjálfari náði að koma því liði á næsta level og uppskar Íslandsmeistaratitil í fyrsta skipti. Nú eru þeir í mjög sterkri stöðu að byggja upp lið sem getur verið í toppbaráttu næstu árin. Það bjuggust flestir sérfræðingar við að lið KR & FH myndu berjast um titilinn en slök byrjun hjá báðum liðum kom í veg fyrir að þeim tækist að hirða titilinn þó þau hafi átt möguleika á því. ÍBV var spútniklið ársins, Heimir þjálfari þeirra á mikið lof skilið hve miklum stöðugleika þeir náðu.
Annars var þjálfara og leikmanna markaðurinn óhemju rólegur að loknu móti.

Framganga U-21 landsliðiðsins var mögnuð og verður frábært að sjá þá í lokakeppni næsta sumar. Það er mikil breidd í þessu liði og baráttan um sæti í þessum hóp fyrir úrslitakeppnina verður mjög fróðleg. Deila landsliðsþjálfarana um leikmenn í fjölmiðlum var ekki til eftirbreytni og má ekki endurtaka sig.

Gylfi Sigurðsson er knattspyrnumaður ársins, hann sló í gegn hjá Reading, skoraði 20 mörk á sínu fyrsta alvöru tímabili. Hann byrjaði svo nýtt tímabil sterkt og var loks keyptur á milljarð takk fyrir, til Hoffenheim í hinni sterku Bundesligu. Virkilega óvænt \'move\' en ég held mjög gott uppá feril hans. Hann var ekkert að tvínóna við hlutina hjá hinu nýja liði og hefur hann farið hamförum þrátt fyrir að liðið vildi leyfa honum að aðlagast liðinu rólega. Þá er ótalið hans hlutverk í U21 og A landsliðinu. Sannkallaður framtíðarmaður íslenskra knattspyrnu og rétt rúmlega tvítugur.

Erlent:
Mourinho sannaði enn og aftur hversu snjall þjálfari hann er, þrenna hans með Inter var mögnuð. Hann er byrjaður að setja sitt mark á stórlið Real Madrid og verður fróðlegt að sjá hvort hann fær þá þolinmæði sem hann á skilið á þeim bænum. Undir lok ársins sýndi Barcelona hvernig á að spila knattspyrnu og sigur þeirra gegn Real fer í sögubækurnar. Meistari Alex Ferguson er ósigrandi með lið sitt þrátt fyrir að liðið sé rétt að komast á skrið. Spánn varð verðskuldaður heimsmeistari en lið Frakklands varð sér til skammar.

Eru teikn á lofti að milljarða lið eins og Chelsea & Manchester City hafi ekki í endalausa sjóði eigenda sinna til að ausa úr. Ekkert gengur að búa til alvöru lið hjá City, þeir boða reyndar frekari kaup en hversu lengi á það að ganga ef árangur næst ekki? Roman Abramovich virðist búinn að loka tékkheftinu hjá sínu liði og aldrei þessu vant hafa þeir ekki þá breidd sem þeir hafa haft síðan hann keypti liðið.
Er það ekki bara hið besta mál fyrir boltann?


Sara Björk Gunnarsdóttir
Leikmaður Breiðabliks og landsliðskona

Innlent:
Það sem stóð kannski helst uppúr á árinu var árangur U-21 var frábær og það verður gaman að fylgjast með þeim á EM.
Íslandsmeistara titill Breiðabliks stóð einnig uppúr og Bikarmeistaratitill FH.
Kata Jóns spilaði 100 landsleiki fyrir Ísland sem er frábær árangur.

Erlent:
HM í sumar , stóð uppúr hvað Spánverjarnir voru yfirburðagóðir og vonbrigði Frakka.
Vonbrigði hjá Man United að hafa ekki unnið Englandsmeistaratitillinn.
Gaman var að sjá hvað gekk vel hjá stelpunum sem eru úti í atvinnumennsku, Hólmfríður spilaði úrslita leik í sterkustu deild í heimi. Þóra sænskur meistari og Edda og Ólína sænskir Bikarmeistarar.


Þorkell Máni Pétursson
Útvarpsmaður á X-inu

Innlent:
U 21 komast nátturlega áfram og Gylfi er að gera það voða gott. En ég segi Blikar meistarar. Það getur eiginlega ekkert annað staðið uppúr. Óla tókst að skapa fyrsta liðið í sögu Breiðbliks sem er ekki uppfullt af vælukjóum þó þeir séu nú svakalega „metro „ eitthvað þessir gaurar . Ekki við öðru að búast kannski af liði sem heldur að Gillz sé kúl týpa. En þessir strákar voru bara með þetta og það var bara vikrilega erfitt og engan veginn hægt að heillast ekki af þessu liði. Ef þetta væri ekki Breiðablik myndi ég klárlega segja að þetta væri eitt af svalari liðum evrópu í dag.

Erlent:
Sigurganga Leeds. Komumst upp úr C deildinni og erum í toppslag í B deild. Fengum líka tækifæri til að sanna enn einu sinni að við erum miklu betra lið en united draslið. Með miklum yfirburða sigri í upphafi árs á Old Trafford.


Guðmundur Benediktsson
Íþróttafréttamaður og aðstoðarþjálfari hjá Breiðablik

Innlent:
Efst í huga mínum er að sjálfsögðu frumraun mín í þjálfun á Selfossi sem fór reyndar ekki eins og ég ætlaði mér en kenndi mér engu að síður gríðar mikið þar sem að margt athyglivert gekk á þar á bæ. Fyrsti íslandsmeistaratitill Breiðabliks er auðvitað líka athygliverður þar sem margir ungir leikmenn blómstruðu. Bikartitill FH-inga, yfirburðir Valskvenna halda áfram en ótrúleg vandræði karlaliðsins héldu einnig áfram, þá snerti það einnig taug að sjá uppeldisfélag sitt frá Akureyri stíga skrefið upp í deild þeirra bestu. Árangur U-21 liðsins var frábær en að sama skapi var ekki árangur hjá A landsliðinu þar sem ótrúlegir hlutir áttu sér stað þegar að stjórn sambandsins virtist vera farin að velja leikmenn fyrir Óla Jó, vonandi fer þó að birta til hjá A liðinu fljótlega.

Erlent:
HM fór fram í Afríku og Spánn vann en annars náði keppnin sjálf aldrei þeim hæðum sem ég vonaðist eftir. Í Englandi kom Anchelotti til Chelsea og gerði það sem honum var ætlað, þ.e.a.s. vann tvöfalt. Í Meistaradeildinni sýndi Jose Mourinho að hann er lang flottastur, þrefalt með Inter og gekk svo á dyr og tók við Real þar sem að hann mun skila árangri þrátt fyrir að hafa verið niðurlægður gegn Barca á dögunum. Árangur Gylfa hjá Reading, salan til Hoffenheim og byrjunin þar. Vistaskipti Eiðs Smára til Stoke voru mér mikil vonbrigði þar sem að Eiður er hvorki góður í innköstum né sköllum en hann mun finna sig á nýjan leik á nýju ári í nýju liði eftir erfiða tíma bæði hjá Stoke og Monaco undanfarið.
Að lokum óska ég öllum landsmönnum farsældar á nýju ári með þá von í hjarta að íslensk knattspyrna haldi áfram að verða betri og að fleiri íslenskir leikmenn fari að láta til sín taka á erlendri grundu sem mun þá gera landslið okkar betri.
Elísabet Gunnarsdóttir.

Elísabet Gunnarsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Alfreð Finnbogason.

Alfreð Finnbogason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Gísli Einarsson.

Gísli Einarsson.

Canon

Mynd: Úr einkasafni

Lárus Orri Sigurðsson.

Lárus Orri Sigurðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristinn Jakobsson.

Kristinn Jakobsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristján Guðmundsson.

Kristján Guðmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Pálmi Rafn Pálmason.

Pálmi Rafn Pálmason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Þórir Hákonarson.

Þórir Hákonarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rakel Hönnudóttir.

Rakel Hönnudóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leifur Garðarsson.

Leifur Garðarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Aron Jóhannsson.

Aron Jóhannsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Gunnar Jarl Jónsson.

Gunnar Jarl Jónsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Gunnleifur Gunnleifsson.

Gunnleifur Gunnleifsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elvar Geir Magnússon.

Elvar Geir Magnússon.

Canon

Mynd: Útvarpsþátturinn Fótbolti.net

Gunnlaugur Jónsson.

Gunnlaugur Jónsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sara Björk Gunnarsdóttir.

Sara Björk Gunnarsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Þorkell Máni Pétursson.

Þorkell Máni Pétursson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Benediktsson.

Guðmundur Benediktsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.