31.12.10 - 07:25
Magnús Már Einarsson
Micky Adams tekinn við Sheffield United (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Micky Adams var í gær ráðinn knattspyrnustjóri hjá Sheffield United sem leikur í ensku Championship deildinni.
Adams, sem er 49 ára, skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning en hann tekur við af Gary Speed sem hætti fyrr í mánuðinum til að taka við landsliði Wales.
Adams var stjóri hjá Port Vale en Sheffield United náði samkomulagi um að fá hann til sín.
Áður hefur Adams meðal annars stýrt Fulham, Brighton og Leicester City.
Fyrsti leikur hans með Sheffield United verður gegn Burnley á morgun.

Heimild: BBC