Fotbolti.net
31.12.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Petter Vaagan Moen til QPR (Staðfest)

Moen í leik með Brann gegn Everton.

Moen í leik með Brann gegn Everton.

Canon

Mynd: Getty Images

Enska félagið QPR sem Heiðar Helguson leikur með hefur fengið norska landsliðsmanninn Petter Vaagan Moen til liðs við sig frá Brann í Noregi.
Moen fær leikheimild með QPR þegar félagaskiptagluginn opnar á morgun en hann gerir tveggja og hálfs árs samning við enska félagið.

Hann á að baki sjö landsleiki fyrir Noreg og hefur lengi verið á óskalista Neil Warnock stjóra QPR.

,,Hann er leikmaður sem ég fylgdist mikið með á síðustu leiktíð og er ánægður með að hafa geta fengið hann til félagsins,\" sagði Warnock á vef QPR í gær.

,,Hann er vinstri fótar miðjumaður sem getur spilað hvar sem er á mið hluta vallarins. Hann er með góða markatölfræði miðað við miðjumann. Hann er traustur og er eins og enskur miðjumaður. Hann hefur aðlagast vel síðan hann byrjaði að æfa með okkur.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.