Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mán 05. október 2015 09:30
Alexander Freyr Tamimi
Myndband: Klopp snerti „This is Anfield“ skiltið
Er Klopp næsti stjóri Liverpool?
Er Klopp næsti stjóri Liverpool?
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp hefur verið sterklega orðaður við stjórastöðuna hjá Liverpool eftir að Brendan Rodgers var rekinn úr starfi í gær.

Klopp, sem gerði frábæra hluti með Borussia Dortmund á sínum tíma, hefur í raun verið orðaður við Liverpool um þó nokkurt skeið og er hann nú talinn líklegasti arftaki Rodgers. Ljóst er að flestir stuðningsmenn eru mjög spenntir yfir hugsanlegri komu Þjóðverjans.

Ekki ætti það að spilla fyrir að Klopp virðist bera ákveðna virðingu fyrir félaginu. Í vináttuleik Liverpool gegn Dortmund í fyrrasumar stóðst hann ekki freistinguna og snerti hið fræga "This is Anfield" skilti áður en hann hélt út á völlinn.

Að snerta skiltið á að gefa leikmönnum góð fyrirheit fyrir leiki og er aðgerðin yfirleitt ekki hugsuð fyrir andstæðinga. Klopp hafði bara svo brennandi áhuga á að taka þátt í hefðinni, sem er eitthvað sem stuðningsmenn ættu að kunna að meta.


Athugasemdir
banner
banner