Það eru ekki nema þrír leikir á dagskrá í Lengjubikarnum í dag þar sem mörg félög eru í æfingaferðum í suðurhluta Evrópu um þessar mundir.
Leikir dagsins eru allir í karlaflokki, þar sem tveir leikir fara fram í B-deild Lengjubikarsins og einn í C-deild.
Kormákur/Hvöt og KF eiga leiki gegn KFA og Magna í Boganum í riðli 4 í B-deild. Þar getur KFA tryggt sér toppsæti riðilsins með sigri á útivelli.
Í C-deildinni er það Hamar sem tekur á móti Álafossi á Selfossi. Hamar er án stiga eftir tvær umferðir, en Álafoss er með þrjú stig eftir þrjár.
Lengjubikar karla - B-deild, riðill 4
15:00 Kormákur/Hvöt-KFA (Boginn)
17:00 KF-Magni (Boginn)
Lengjubikar karla - C-deild, riðill 2
14:00 Hamar-Álafoss (JÁVERK-völlurinn)
Lengjubikar karla - B-deild, riðill 4
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. KFA | 5 | 4 | 1 | 0 | 15 - 5 | +10 | 13 |
2. KF | 5 | 2 | 3 | 0 | 12 - 8 | +4 | 9 |
3. Völsungur | 5 | 1 | 2 | 2 | 8 - 14 | -6 | 5 |
4. Magni | 5 | 1 | 1 | 3 | 8 - 8 | 0 | 4 |
5. Höttur/Huginn | 4 | 0 | 3 | 1 | 7 - 9 | -2 | 3 |
6. Kormákur/Hvöt | 4 | 0 | 2 | 2 | 4 - 10 | -6 | 2 |
Lengjubikar karla - C-deild, riðill 2
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Ýmir | 5 | 5 | 0 | 0 | 35 - 5 | +30 | 15 |
2. Mídas | 5 | 4 | 0 | 1 | 11 - 13 | -2 | 12 |
3. Hafnir | 5 | 3 | 0 | 2 | 21 - 12 | +9 | 9 |
4. Hamar | 5 | 2 | 0 | 3 | 12 - 11 | +1 | 6 |
5. Álafoss | 5 | 1 | 0 | 4 | 15 - 16 | -1 | 3 |
6. Uppsveitir | 5 | 0 | 0 | 5 | 3 - 40 | -37 | 0 |
Athugasemdir