Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   lau 22. október 2016 14:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Howe: Stoltari núna en eftir 6-1 sigur um síðustu helgi
Howe var sáttur með sína menn
Howe var sáttur með sína menn
Mynd: Getty Images
„Ég er stoltari núna af leikmönnunum heldur en eftir 6-1 sigurinn gegn Hull um síðustu helgi," sagði Eddie Howe, stjóri Bournemouth, eftir 0-0 jafntefli gegn Tottenham á heimavelli í dag.

„Við börðumst af krafti við stórkostlegt lið og þetta var leikur þar sem gæðin voru ótrúleg. Við áttum ekki skilið að tapa, við áttum góð augnablik líka. Við náðum að loka á allt sem þeir gerðu hættulegt."

„Bæði lið áttu sín augnablik, en Benik Afobe fékk líklega besta færið undir lokin. Það var ekkert mikið að gera hjá markvörðunum í dag."

Howe var spurður út í Jack Wilshere, en hann spilaði sinn fyrsta heila fótboltaleik frá 2014 í dag.

„Ég er ánægður fyrir hönd Jack Wilshere, hann var magnaður frá byrjun til enda. Hann var skítavinnuna í dag og var sérstaklega góður varnarlega."
Athugasemdir
banner
banner