Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mán 22. desember 2014 10:20
Magnús Már Einarsson
QPR ætlar að hafna öllum tilboðum í Charlie Austin
Mynd: Getty Images
Harry Redknapp, stjóri QPR, segir að öllum tilboðum í Charlie Austin í janúar verði hafnað.

Austin hefur skorað ellefu mörk á tímabilinu en hann skoraði öll mörkin í 3-2 sigri á WBA um helgina.

,,Ef við myndum selja Charlie Austin þá gætum við allt eins farið heim," sagði Redknapp.

,,Við þurfum á Charlie að halda til að halda áfram því sem við erum að gera og við höfum ekki efni á að taka fótinn af bensíngjöfinn."

,,Hann á að stefna á að ná 20 mörkum núna."

Athugasemdir
banner