Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   mán 25. mars 2024 15:04
Elvar Geir Magnússon
Wroclaw
Allir með á æfingu Íslands í Wroclaw í dag
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Ísland æfir þessa stundina á keppnisvellinum í Wroclaw þar sem Ísland mætir Úkraínu annað kvöld í hreinum úrslitaleik um sæti á EM í Þýskalandi í sumar. Góðu tíðindin eru þau að allir leikmenn íslenska hópsins taka þátt í æfingunni.

Eins og kunnugt er þurfti Arnór Sigurðsson að draga sig út úr hópnum eftir hræðilega tæklingu sem hann varð fyrir í leiknum gegn Ísrael fyrir helgi og Stefán Teitur Þórðarson er kominn í hópinn í hans stað.

Jóhann Berg Guðmundsson missti af leiknum gegn Ísrael vegna meiðsla en hann er klár í slaginn og tekur þátt í æfingunni í dag.

Óvissa hefur verið með þátttöku Arnórs Ingva Traustasonar og Guðlaugs Victors Pálssonar sem hafa verið tæpir frá leiknum á fimmtudaginn en þeir taka þátt í æfingunni sem nú stendur yfir svo búast má við þeim líka.

Leikurinn hefst klukkan 19:45 annað kvöld og verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.

Auk þess verður fylgst vel með öllu sem gerist í aðdraganda leiksins en tveir fréttamenn Fótbolta.net eru í Tyrklandi auk ljósmyndara sem verður á leiknum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner