Ísland mun klukkan 15 að íslenskum tíma í dag hefja æfingu á keppnisvellinum í Wroclaw í Póllandi og í kjölfarið verður fréttamannafundur.
Annað kvöld er komið að úrslitaleiknum gegn Úkraínu þar sem í húfi er sæti á EM í Þýskalandi. Eftirvæntiningin er mikil.
Annað kvöld er komið að úrslitaleiknum gegn Úkraínu þar sem í húfi er sæti á EM í Þýskalandi. Eftirvæntiningin er mikil.
Varnarmaðurinn Sverrir Ingi Ingason mun sitja fyrir svörum ásamt Age Hareide í dag.
Algengast er að það sé fyrirliðinn sem sé á fréttamannafundinum, þó það sé ekki algilt. Einhverjir gætu því lesið í þetta að Jóhann Berg Guðmundsson sé líklega ekki leikfær fyrir morgundaginn.
Jóhann Berg var á fréttamannafundinum fyrir leikinn gegn Ísrael en spilaði hinsvegar ekki. Þá hefur Aron Einar Gunnarsson stundum verið á fréttamannafundum í gegnum tíðina þó ljóst hafi verið að hann myndi ekki spila.
Það er því enginn hægðarleikur að reyna að lesa eitthvað í þetta.
Athugasemdir