Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 25. mars 2024 20:02
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikar kvenna: Valur flaug í úrslit
Amanda Andradóttir skoraði tvö fyrir Val
Amanda Andradóttir skoraði tvö fyrir Val
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur 4 - 0 Stjarnan
1-0 Amanda Andradóttir ('32 )
2-0 Hailey Whitaker ('45 )
3-0 Amanda Andraóttir ('77 )
4-0 Helena Ósk Hálfdánardóttir ('78 )

Valskonur spila til úrslita í Lengjubikarnum eftir að liðið vann öruggan 4-0 sigur á Stjörnunni á N1-vellinum á Hlíðarenda í kvöld.

Heimakonur voru með undirtökin stærstan hluta leiksins og kom því ekki á óvart þegar Amanda Andradóttir gerði fyrsta markið á 32. mínútu.

Hailey Whitaker tvöfaldaði forystuna í uppbótartíma fyrri hálfleiks og Valskonur því í frábærum málum.

Þrettán mínútum fyrir leikslok skoraði Valur tvö mörk á rúmri mínútu. Amanda gerði annað mark sitt áður en Helena Ósk Hálfdánardóttir rak síðasta naglann í kistu Stjörnunnar.

Valur mun mæta Breiðabliki í úrslitum A-deildar, en Blikar unnu Þór/KA í hinum undanúrslitaleiknum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner