Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 25. mars 2024 18:51
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu markið sem Rebrov man ekki eftir að hafa skorað gegn Íslandi
Icelandair
Mynd: Getty Images
Serhiy Rebrov landsliðsþjálfari Úkraínu skoraði eitt sinn gegn Íslandi, sigurmarkið í 1-0 sigri Úkraínu á Laugardalsvelli í undankeppni EM árið 1999. Markið skoraði hann af vítapunktinum.

Rebrov man þó ekkert eftir þeim leik í dag.

„Mér var sagt að ég hefði eitt sinn skorað gegn Íslandi en ég man ekki eftir því, ég man ekki eftir íslenska liðinu þá. Það hafa hinsvegar verið framfarar í íslenskum fótbolta og einkenni þeirra er agi. Íslenska landsliðið er ekki eins og það var þegar ég spilkaði gegn þeim," sagði Rebrov á fréttamannafundi í dag.

Klukkan 19:45 á morgun mætast Úkraína og Ísland í úrslitaleik um sæti á Evrópumótinu en leikið er í borginni Wroclaw í Póllandi.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner