Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   lau 25. júní 2016 15:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Mosfellingur 
Ísak Snær til Norwich (Staðfest)
Ísak Snær ásamt foreldrum sínum og tvíburasystrum.
Ísak Snær ásamt foreldrum sínum og tvíburasystrum.
Mynd: Mosellingur/Raggi Óla
Ísak Snær Þorvaldsson, leikmaður Aftureldingar, er búinn að semja við Norwich í Englandi. Hann mun halda til Norwich nú í júnímánuði.

Ísak er 15 ára gamall og gríðarlega efnilegur. Hann hefur spilað allan sinn feril með Aftureldingu, en mun nú halda til Norwich í Englandi.

„Ég er mjög spenntur fyrir þessu tækifæri, ég mun æfa og keppa með U16 og U18 liðum Norwich,“ segir Ísak. „Þetta byrjaði þannig að þeir buðu mér í gegnum umboðsmanninn minn að koma á reynslu hjá þeim í apríl 2015. Síðan þá hef ég farið fjórum sinnum til þeirra og æft með félaginu auk þess að taka þátt í Rey Cup með þeim í fyrrasumar," sagði Ísak í samtali við Mosellinginn.

Fjölskylda Ísaks mun flytja út til Englands með honum.

„Þetta er mikið tækifæri fyrir Ísak sem hefur lengi stefnt að því að verða atvinnumaður í fótbolta. Við fjölskyldan lítum líka á þetta sem ævintýri og erum ákveðin í að njóta þess,“ sagði Þorvaldur faðir hans. „Ísak byrjar á því að fara í einkaskóla þar sem hann mun klára 10. bekk en í framhaldinu verður hann svo alfarið í akademíunni hjá þeim þegar hann hefur náð 16 ára aldri. Við komum til með að búa í nágrenni við æfingasvæði, okkur líst mjög vel á þessa borg og það hefur verið einstaklega vel tekið á móti okkur.“

Þeir feðgar eru sammála um að Norwich sé góður klúbbur, frábærir þjálfarar og góður andi meðal strákanna.

„Þetta er búið að vera draumur hjá mér lengi og aðalmarkmiðið hjá mér núna er að hafa gaman af þessu og njóta en að sjálfsögðu að gera mitt besta,“ sagði Ísak að lokum.
Athugasemdir
banner
banner