Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 28. mars 2024 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Messi: Mun stoppa þegar ég hætti að vera nothæfur
Mynd: Getty Images
Lionel Messi verður 37 ára í sumar en hann veit ekki hvenær hann ætlar að setja fótboltaskóna á hilluna eftir magnaðan feril.

Messi er oft spurður hvenær hann ætli að hætta í fótbolta en hann á tæplega tvö ár eftir af samningi sínum við Inter Miami í MLS deildinni.

„Ég mun stoppa þegar ég hætti að njóta mín eða þegar ég hætti að vera nothæfur á vellinum. Þegar ég hætti að hjálpa liðsfélögunum mínum þá hætti ég í fótbolta," svaraði Messi.

„Það skiptir engu máli hversu gamall ég verð, þetta snýst bara um hvernig mér líður. Ef mér líður vel þá mun ég halda áfram að spila, annars ekki."
Athugasemdir
banner