Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   fim 28. apríl 2016 20:28
Ívan Guðjón Baldursson
Benzema og Ronaldo gætu misst af seinni leiknum
Mynd: Getty Images
Karim Benzema gæti misst af síðari viðureign Real Madrid og Manchester City í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

Benzema meiddist aftan á læri í fyrri leik liðanna sem lauk með markalausu jafntefli á Etihad leikvanginum síðasta þriðjudag. Franski sóknarmaðurinn þurfti að fara af velli í hálfleik vegna meiðslanna.

Óljóst er hvort Cristiano Ronaldo verði með í leiknum vegna meiðsla á læri. Tvíeykið hefur skorað 74 mörk á tímabilinu og ljóst að Gareth Bale þarf að draga vagninn missi þeir báðir af undanúrslitaleiknum í næstu viku.

Það er staðfest að Benzema missir af leik Real Madrid gegn Real Sociedad í spænska boltanum um helgina en ekki er vitað hversu alvarleg meiðsli Ronaldo eru.
Athugasemdir
banner
banner
banner