Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 29. mars 2024 10:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Viðar Örn í KA (Staðfest)
Mynd: KA

Viðar Örn Kjartansson er genginn til liðs við KA en þessi 34 ára gamli framherji lék síðast með CSKA 1948 í Búlgaríu.


Viðar Örn er með gríðarlega mikla reynslu en hann uppalinn í Selfossi auk þess að hafa spilað með ÍBV og Fylki hér á landi.

Hann hefur komið víða við á atvinnumannaferli sínum en hann lék meðal annars með Valerenga, Malmö, Maccabi Tel Aviv og Jiangsu Sainty í Kína.

Hann sagði sig lausan hjá CSKA 1948 fyrir áramót en hann hefur m.a. æft með FH í vetur en hefur nú samið við KA.

Tilkynning KA í heild:

Knattspyrnudeild KA barst í dag heldur betur stórkostlegur liðsstyrkur þegar Viðar Örn Kjartansson skrifaði undir samning við félagið. Viðar Örn er einhver allra mesti markaskorari í sögu Íslands og segir það ansi mikið um það umhverfi sem við höfum skapað hér fyrir norðan að Viðar Örn gangi í raðir KA.

Viðar Örn er 34 ára gamall og gengur í raðir KA frá Búlgarska liðinu CSKA 1948. Viðar hefur leikið með stórum liðum á sínum ferli en 2014 hélt hann út til Vålerenga í Noregi þar sem hann varð markakóngur efstu deildar með 25 mörk í 29 leikjum.

Í kjölfar þessa stórkostlega tímabils í Noregi var hann keyptur til Jiangsu Sainty í Kína. Þaðan lá leiðin til Malmö FF í Svíþjóð þar sem hann gerði 14 mörk í 20 leikjum uns hann gekk í raðir Ísraelska stórliðsins Maccabi Tel Aviv. Með Maccabi gerði hann 32 mörk í 63 leikjum og var markakóngur deildarinnar tímabilið 2016-2017 með 19 mörk.

Árið 2018 gekk hann í raðir Rostov í Rússlandi en hann lék einnig með Rubin Kazan þar í landi. Hann sneri svo aftur í Vålerenga þar sem hann gerði 18 mörk í 42 leikjum. Eftir góða frammistöðu með Vålerenga lá leiðin til Grikklands þar sem hann lék með Atromitos áður en hann hélt til Búlgaríu.

Þá hefur Viðar Örn leikið 32 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og gert í þeim fjögur mörk, þar á meðal glæsilegt mark gegn Danmörku í þjóðadeildinni. Við bjóðum hann hjartanlega velkominn norður og hlökkum til að sjá til hans í gula og bláa búningnum.


Athugasemdir
banner
banner