Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   þri 31. mars 2015 12:17
Magnús Már Einarsson
Neymar ekki á leið í enska boltann
Mynd: Getty Images
Neymar var í eldlínunni með brasilíska landsliðinu gegn Síle á sunnudag en spilað var á Emirates leikvanginum.

Eftir leik spurður fjölmiðlar Neymar út í möguleika á að spila á Englandi í framtíðinni.

Hinn 23 ára gamli Neymar gaf lítið fyrir það.

,,Varðandi það að spila á Englandi þá er ég mjög ánægður hjá Barcelona og ég á ennþá mikið verk óunnið þar," sagði Neymar.

Neymar kom til Barcelona frá Santos árið 2013 en hann er á sínu öðru tímabili á Spáni.
Athugasemdir
banner
banner
banner