Garnacho á leið til Chelsea - Milan hefur áhuga á Nkunku og Akanji - Newcastle gerir nýtt tilboð í Larsen
   fim 01. desember 2005 09:00
Michael Owen - Newcastle (24)
Fótbolti.net stóð fyrir kosningu á 24 bestu knattspyrnumönnum heimsins í nóvember mánuði árið 2004. Við gerðum svo ítarlega pistla um alla leikmennina í jóladagatalinu sem við munum nú, vegna fjölda áskoranna, birta upp á nýtt með uppfærðum upplýsingum og myndum frá NordicPhotos/GettyImages.

Númer 24 er leikmaður Newcastle United, Michael Owen.


24. Michael Owen

Michael James Owen er fæddur þann 14. desember árið 1979 og verður hann því 25 ára gamall eftir tvær vikur. Owen er fæddur í Chester, Wales og byrjaði fljótt að sína mikla hæfileika með knöttinn. Saga hans er líklega draumur flestra enskra pilta....

Owen er kominn af mikilli knattspyrnufjölskyldu. Faðir hans, Terry Owen, spilaði knattspyrnu um árabil, þar á meðal með Everton sem Owen studdi þegar hann var ungur. Það átti þó eftir að breytast! Faðir hans rifjar svona upp æsku sonar síns: "Ég tók hann með að gamni til að leika sér með öðrum krökkum í fótbolta. Hann var 5 ára gamall. Flestir krakkarnir rétt gátu sparkað í boltann með tánni en Michael var að setja boltann utanfótar í markhornið.

Maður gat haldið að hann væri þrem til fjórum árum eldri en hann var. Það var stórmerkilegt. Ég man þegar ég horfði á hann út um eldhúsgluggann leika listir sínar. Alveg frá blautu barnsbeini vissi ég að hann yrði sérstakur. Helsti kostur hans er hversu fljótur hann er á fyrstu metrunum og hversu snöggur hann er að hugsa í þeirri stöðu. Hann hefur skorað hundruðir marka. Það er honum eðlislægt að skora mörk."


Átta ára gamall var Owen valinn til að leika með U-11 ára liði Deesidehéraðs. Níu ára gamall var hann orðinn fyrirliði. Tíu ára gamall sló hann 20 ára gamalt met Ian Rush hjá Deesideliðinu með því að skora 97 mörk á einu keppnistímabili en metið bætti hann um hvorki meira né minna en 25 mörk!

Owen stundaði nám sitt vel en þrátt fyrir góðan námsárangur þá var alltaf ljóst hvar framtíð hans lægi. Hann skrifaði undir hjá Liverpool á 17 ára afmælisdegi sínum, þann 14. desember árið 1996.

Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir Liverpool gegn Wimbledon þann 6. maí, 1997. Þá byrjaði hann á varamannabekknum en kom inná fyrir Patrick Berger á 58. mínútu. Það tók Owen ekki nema 16. mínútur að skora og verða þannig yngsti markaskorari Liverpool frá upphafi, 17 ára og 144 daga gamall.
Á tímabilinu 1997/1998 sló hann svo rækilega í gegn. Þá skoraði hann 23 mörk í öllum keppnum fyrir Liverpool og varð um leið heitasti unglingurinn í enska boltanum. Hann var valinn "Besti ungi leikmaður tímabilsins" og varð síðan yngsti leikmaðurinn til að spila fyrir enska landsliðið þegar hann spilaði gegn Chile, 18 ára og tveggja mánaða gamall.

Hann sló í gegn á HM í Frakklandi 1998 og skoraði eitt af mörkum keppninnar. Video af markinu er hægt að sjá með því að smella hér.

Hann skoraði einnig 23 mörk á tímabilinu 1998/1999 en í apríl gerðist nokkuð sem átti eftir að hafa mikil áhrif á feril hans. Þá meiddist Owen á hásin og það þýddi að hann varð frá í einn mánuð og þar með út tímabilið. Þessi meiðsli áttu svo eftir að koma upp aftur og aftur og aftur.

Meiðslin voru Owen erfið og á tímabilinu 1999/2000 skoraði hann aðeins 12 mörk. Honum gekk svo ekki vel á EM 2000 í Hollandi og Belgíu en þá var honum skipt útaf í öllum þremur leikjunum. Hann skoraði þó eitt mark, týpískt Owen mark, gegn Rúmeníu.

Owen byrjaði næsta tímabil, 2000/2001 mjög vel og var lengi vel á meðal markahæstu manna. En meiðsli sem og gott form hinna framherjanna á Anfield gerðu honum erfitt fyrir. Þrátt fyrir að skora tvö mörk gegn risunum frá Roma í UEFA bikarkeppninni varð hann að horfa á leikinn gegn Birmingham í úrslitum Worthington bikarkeppninnar frá hliðarlínunni. Liðið vann titilinn og var það byrjunin á þrennutímabilinu fræga hjá Liverpool.

Þegar dró nær lokum tímabilsins var Owen aftur kominn í sitt besta form og hann skoraði þrennu gegn Newcastle í maí og tvö gegn Chelsea í næsta leik. Hann skoraði átta mörk í fjórum leikjum í maí og voru þau gríðarlega mikilvæg liðinu.

Liverpool var 1-0 undir gegn Arsenal í úrslitaleik FA bikarsins á Þúsaldarvellinum í Cardiff þegar Micahel Owen tók til sinna ráða. Hann gerði sér lítið fyrir og skoraði tvö mörk og tryggði Liverpool titilinn og var eftir það kallaður "Prinsinn af Wales". Liverpool vann einnig Alaves í úrslitum UEFA keppninnar í mögnuðum leik sem endaði 5-4 eftir framlenginu.
Á næstu tveimur tímabilum blómstraði Owen og skoraði 28 mörk í öllum keppnum, bæði tímabilin. Hann spilaði með enska landsliðinu á HM 2002 í Japan og Suður-Kóreu þar sem han stóð sig með prýði.

Á síðasta tímabili var hann í misjöfnu formi. Hann skoraði 19 mörk í öllum keppnum en klúðraði mörgum vítaspyrnum og öðrum dauðafærum og margir urðu pirraðir á stráknum. Honum gekk einnig illa á Evrópumótinu í Portúgal en skoraði þar eitt mark.

Eftir tímabilið var Gerard Houllier látinn fara og Rafael Benítez tók við. Hann gerði það sem fáir bjuggust við, hann seldi Owen til Real Madrid fyrir 8 milljónir punda, auk Antonio Nunez sem fór til Liverpool.

Hjá Real Madrid stóð Owen sig mjög vel þrátt fyrir erfiða byrjun þar sem hann fékk að verma tréverkið leik eftir leik. Hann skoraði samt sextán mörk í öllum keppnum og sýndi öllum að hann getur vel spilað á meðal þeirra bestu í heimi. Owen fann sig vel á Spáni en fékk lítið að spila vegna gífurlegrar samkeppni í liðinu.

Real Madrid ákvað svo að kaupa Julio Baptista og Robinho í sumar og var Owen þá kominn ansi aftarlega í goggunarröðina. Hann ákvað að fara frá félaginu og sýndu nokkur lið honum áhuga, þá sérstaklega Newcastle auk hans gamla félags Liverpool.

Liverpool var ekki tilbúið að jafna tilboðið sem Newcastle bauð í Owen, sautján milljónir punda sem er félagsmet hjá liðinu sem greiddi fimmtán milljónir fyrir goðsögnina Alan Shearer. Liverpool fengu aðeins átta milljónir fyrir Owen og ákváðu að láta ekki draga sig út í hækkað kaupverðið sem Newcastle var meira en tilbúið til að reiða fram.
Hjá Newcastle hefur Owen farið vel af stað en miklar vangaveltur voru í kringum komu Owen þar sem margir héldu að hann hafi sett ákvæði í samning sinn um að hann gæti farið frá liðinu næsta sumar.

Newcastle er sem stendur ekki í samkeppni um Meistaradeildarsæti og gæti Owen freistast til að spila í Evrópukeppninni á ný. Owen er giftur Louise Bonsall og saman eiga þau eina dóttir sem heitir Gemma Rose.

Heimildir:
Liverpool.is
LFCHistory.net
Athugasemdir
banner