FRÉTTIR17.08.2024, 23:30
<i>„Það var nokkrum dögum fyrr en ég þurfti aðeins lengri tíma til að hugsa mig um og svo fór allt á flug um kvöldið á gluggadegi,“ </i> sagði Dagur Ingi Valsson, nýr leikmaður KA, í viðtali við Fótbolta.net, en hann kom til félagsins frá Keflavík.
FRÉTTIR17.08.2024, 15:20
Ítalska stórveldið AC Milan er búið að festa kaup á franska landsliðsmanninum Youssouf Fofana sem kemur úr röðum AS Monaco.
FRÉTTIR17.08.2024, 11:52
Lazio er búið að festa kaup á framherjanum öfluga Boulaye Dia sem hefur spilað lítinn fótbolta undanfarna mánuði.
FRÉTTIR17.08.2024, 11:34
Hoffenheim er búið að festa kaup á tékkneska framherjanum Adam Hlozek, sem kemur til félagsins úr röðum Þýskalandsmeistara Bayer Leverkusen.
FRÉTTIR17.08.2024, 09:37
Jobe Bellingham, yngri bróðir stórstjörnunnar Jude, er búinn að gera nýjan samning við Sunderland þrátt fyrir áhuga úr ensku úrvalsdeildinni.
FRÉTTIR17.08.2024, 09:16
Franska stórveldið Paris Saint-Germain er búið að staðfesta félagaskipti Désiré Doué til félagsins.
FRÉTTIR17.08.2024, 09:00
<p>Southampton hefur fengið franska miðjumanninn Lesley Ugochukwu á láni frá Chelsea fyrir átökin í úrvalsdeildinni.</p>
FRÉTTIR17.08.2024, 06:00
<p>Nottingham Forest hefur nælt í vængmanninn Ramon Sosa en hann er landsliðsmaður Paragvæ. </p><p>Hann skrifar undir fimm ára samning.</p>
FRÉTTIR16.08.2024, 21:17
Igor Bjarni Kostic hefur verið ráðinn þjálfari Gróttu sem leikur í Lengjudeildinni en hann tekur við af Chris Brazell sem var látinn taka pokann sinn á dögunum.
FRÉTTIR16.08.2024, 19:22
<p>Brasilíski framherjinn Evanilson er genginn til liðs við Bournemouth frá Porto fyrir metfé.</p>
FRÉTTIR16.08.2024, 17:30
Xherdan Shaqiri er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við FC Basel og er því mættur aftur í félagið þar sem hann hóf feril sinn.
Shaqiri er 32 ára, fyrrum svissneskur landsliðsmaður, sem hefur leikið með Chicago Fire síðustu þrjú tímabil. Hann lagði landsliðsskóna á hilluna eftir EM. Hann rifti samningum sínum við Chicago fyrr í þessari viku.
FRÉTTIR16.08.2024, 16:55
Albert Guðmundsson er formlega orðinn leikmaður Fiorentina. Ítalska félagið kynnir hann sem nýjan leikmann á samfélagsmiðlum sínum.
Í tilkynningu Fiorentina segir að hann verði formlega kynntur á fjölmiðlaviðburði í hádeginu á þriðjudag.
Albert kemur á láni frá Genoa og er Fiorentina með kaupmöguleika í þeim lánssamningi. Fiorentina greiðir Genoa 8 milljónir evra fyrir að hafa Albert í eitt tímabil og þarf svo að greiða 20 milljónir evra til viðbótar til að fá hann alfarið yfir.
Fiorentina á leik gegn Parma á morgun í 1. umferð ítölsku deildarinnar. Svo mætir liðið Puskas Academy í umspili um sæti í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar. Leikurinn á fimmtudag gæti orðið fyrsti leikur Alberts fyrir Fiorentina.
FRÉTTIR16.08.2024, 16:50
Vestri hefur fengið liðsstyrk fyrir endasprett tímablsins því Inaki Rodriguez er orðinn leikmaður félagsins. Hann getur spilað með liðinu gegn KR á morgun því félagaskiptin gengu í gegn í dag og leikheimildin tekur gildi á morgun.
Vestramenn voru vongóðir um að hafa náð að skila öllum pappírum rétt frá sér fyrir gluggalok og það hefur tekist. Glugginn lokaði á þriðjudagskvöld.
Hann er 24 ára Spánverji sem spilar framarlega á miðjunni. Hann er í raun fjórði leikmaðurinn sem Vestri fékk í glugganum.
Vestri fékk tvo markverði og svo danska miðjumanninn Jeppe Pedersen.
FRÉTTIR16.08.2024, 15:00
Diego Moreira gekk í raðir Chelsea síðasta sumar á frjálsri söu frá Benfica. Vængmaðurinn er tvítugur og skrifaði undir fimm ára samning.
Hann lék einn leik með Chelsea, leik í deildabikarnum í lok ágúst.
Hann var svo lánaður til Lyon og lék með franska liðinu fyrri hluta tímabilsins. Hann spilaði einungis sjö deildarleiki með Lyon og sneri aftur til Chelsea í janúar.
FRÉTTIR16.08.2024, 14:25
Southampton hefur krækt í liðsstyrk frá Aston Villa því sóknarmaðurinn Cameron Archer er kominn til félagsins og skrifar undir fjögurra ára samning. Kaupverðið er sagt vera 15 milljónir punda.
Archer er 22 ára og er uppalinn hjá Aston Villa. Hann var keyptur til Sheffield United fyrir síðasta tímabil en eftir að Sheffield United féll sneri Archer aftur til Villa.
FRÉTTIR16.08.2024, 13:13
Enski miðjumaðurinn Kalvin Phillips er mættur til Ipswich og spilar þar í vetur á láni frá Manchester City.
Enski landsliðsmaðurinn er sagður hafa orðið spenntur fyrir verkefninu hjá Ipswich eftir samtal við stjórann Kieran McKenna og stjórnarformanninn Mark Ashton.
FRÉTTIR16.08.2024, 11:39
Ipswich hefur krækt í Sammie Szmodics frá Blackburn. Ipswich er talið greiða á bilinu 9-10 milljónir punda.
Szmodics varð markakónugr í næstefstu deild Englands, Championship, á síðasta tímabili. Hann skpraði 27 mörk og hefur þegar skorað þrjú mörk á þessu tímabili í tveimur leikjum.
FRÉTTIR16.08.2024, 10:46
Willian tilkynnti með færslu á <i>Instagram</I> í dag að hann væri farinn frá Fulham. Samningur hans við félagið rann út í sumar.
Fjallað var um það í vor að stjórinn, Marco Silva, ætlaði sér að gera allt sem hann gæti til að halda Willian hjá félaginu en það tókst ekki.
FRÉTTIR16.08.2024, 10:12
Tottenham hefur keypt kantmanninn Wilson Odobert frá Burnley. Í frönskum fjölmiðlum er talað um að kaupverðið sé í kringum 37 milljónir evra.
Þessi 19 ára gamli leikmaður skrifar undir samning sem gildir til ársins 2029.
FRÉTTIR16.08.2024, 08:40
Þýski miðvörðurinn Armel Bella-Kotchap er kominn til Hoffenheim þrátt fyrir vandamál í læknisskoðun hjá félaginu.