Albert framlengir við Genoa (Staðfest)
Albert Guðmundsson hefur framlengt samning sinn við ítalska úrvalsdeildarfélagið Genoa. Nýr samningur hans gildir til ársins 2027.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25171 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Albert Guðmundsson hefur framlengt samning sinn við ítalska úrvalsdeildarfélagið Genoa. Nýr samningur hans gildir til ársins 2027.
Knattspyrnudeild Fram hefur staðfest endurkomu Emblu Daggar Aðalsteinsdóttur til félagsins eftir nokkur ár með yngri flokkum Vals og Víkings R.
Hrannar Snær Magnússon er búinn að kveðja Selfoss eftir eitt tímabil með félaginu.
Gylfi Tryggvason hefur ákveðið að hætta starfi sínu sem þjálfari FC Árbær eftir að hafa náð flottum árangri með liðið.
Arna Sif Ásgrímsdóttir er búin að skrifa undir nýjan samning við Val eftir að hafa verið algjör lykilleikmaður í liðinu frá komu sinni til félagsins í fyrra.
Vestri verður með lið í 2. deild kvenna á komandi tímabili. Þjálfarastarfið var auglýst á dögunum og í dag var kynntur nýr þjálfari. Það er Kristján Arnar Ingason sem á að hefja enduruppbyggingu meistaraflokks kvenna sem var síðast með lið á Íslandsmóti árið 2013.
Miðjumaðurinn öflugi, Þórdís Elva Ágústsdóttir, hefur yfirgefið herbúðir Vals og er gengin í raðir Vaxjö í Svíþjóð. Sænska félagið greinir frá þessum tíðindum í dag.
Þýska úrvalsdeildarfélagið Union Berlín hefur rekið þjálfarann Urs Fischer úr starfi.
Bandaríska kvennalandsliðið hefur staðfest yfirvofandi ráðningu á Emma Hayes sem nýjum landsliðsþjálfara eftir að keppnistímabilinu lýkur á Englandi.
Ítalíumeistarar Napoli hafa staðfest önnur þjálfaraskipti félagsins á innan við hálfu ári eftir að hafa unnið langþráðan Ítalíumeistaratitil.
Valur tilkynnti í dag um komu Þorsteins Arons Antonssonar sem gengur í raðir félagsins eftir að hafa spilað með Selfossi í Lengjudeildinni í sumar. Hann kemur til Vals frá Fulham en hann var á láni á Selfossi frá enska félaginu. Þorsteinn Aron er unglingalandsliðmaður, miðvörður sem var árið 2020 valinn efnilegasti leikmaður 2. deildar og var hann keyptur til Fulham þá um haustið.
Þýska stórveldið Bayern München hefur gengið frá kaupum á ástralska ungstirninu Nestory Irankunda. Hann kemur til Bayern frá Adelaide United í heimalandi sínu.
Fram er búið að krækja í Víði Frey Ívarsson, sóknarþenkjandi leikmann sem kemur úr röðum HK.
Villarreal er búið að staðfesta ráðningu á Marcelino í þjálfarastarfið hjá félaginu og gerir hann samning sem gildir í tvö og hálft ár, eða til sumarsins 2026.
Emil Atlason, markahæsti leikmaður Bestu deildarinnar tímabilið 2023, hefur skrifað undir nýjan samning við Stjörnunar. Hann hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2026.
Breiðablik hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi tímabil í Bestu deildinni því Jakobína Hjörvarsdóttir hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Jakobína kemur frá Þór/KA þar sem hún hefur leikið allan sinn meistaraflokksferil.
Eiður Atli Rúnarsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við HK. Fyrri samningur var að renna út. <i>„Eiður er fæddur árið 2002 og er uppalinn HK-ingur. Eiður spilaði 17 leiki í Bestu Deild karla með félaginu í sumar auk þess var hann einnig í æfingahóp U-21 landsliðs Íslands fyrr á árinu,"</I> segir í tilkynningu HK.
Elísabet Gunnarsdóttir stýrði um liðna helgi sínum síðasta leik hjá sænska félaginu Kristianstad.
Sænska úrvalsdeildarfélagið Norrköping hefur staðfest að félagið sé búið að reka stjórann Glen Riddersholm úr starfi.
Como 1907, félag í Seríu B á Ítalíu, tilkynnti í morgun að Moreno Longo væri ekki lengur þjálfari liðsins. Leit stendur yfir að næsta þjálfara liðsins en til bráðabirgða mun Cesc Fabregas stýra liðinu. Fabregas tók við sem þjálfari unglingaliðsins í sumar þegar hann lagði skóna á hilluna.