04.05.23
Spá þjálfara í 2. deild: 3. sæti
GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í 2. deild í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla þjálfara liðanna í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin því stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Þróttur Vogum féll úr Lengjudeildinni í fyrra en þeim er ekki spáð beint aftur upp.
Spáin:
1.
2.
3. Þróttur Vogum, 99 stig
4. Haukar, 88 stig
5. Sindri, 73 stig
6. Höttur/Huginn, 69 stig
7. Dalvík/Reynir, 63 stig
8. Völsungur, 53 stig
9. Víkingur Ó., 46 stig
10. KV, 42 stig
11. KF, 32 stig
12. KFG, 19 stig
Lokastaða í fyrra: Þróttur Vogum vann sig upp í Lengjudeildina í fyrsta sinn í sögu félagsins sumarið 2021 en þeir voru ekki alveg tilbúnir í stökkið því síðasta tímabil var í raun hræðilegt. Liðið átti aldrei möguleika á að halda sér uppi og endaði í neðsta sæti. Þjálfarahrókeringar höfðu líklega mikil áhrif en Hermann Hreiðarsson, sem kom liðinu upp, hætti fyrir síðasta leiktíð og tók við ÍBV.
Þjálfarinn: Brynjar Gestsson tók aftur við liðinu snemma á síðustu leiktíð. Brynjar er klárlega einn skemmtilegasti karakterinn í þessari deild og hann talar í fyrirsögnum. Brynjar þjálfaði líka liðið 2017 og 2020, og gerði þá mjög flotta hluti með liðið. Andri Steinn Birgisson er kominn inn í teymið og verður aðalþjálfari með Brynjari, sem er virkilega sterkt. Brynjar hefur verið að glíma við veikindi að undanförnu og sendum við honum bestu batakveðjur.
Álit Ástríðunnar
Hlaðvarpsþátturinn Ástríðan er leiðandi í umfjöllun um 2. deild. Þáttastjórnendur gefa sitt álit á liðunum fyrir mót.

„Úr leik hjá Þrótturum á undirbúningstímabilinu.“
Um Þrótt Vogum segja þeir: Brynjar Gestsson fær enn einu sinni það hlutskipti að byggja upp glænýtt lið í Vogunum. Hann er kominn með svarta beltið í því og fer nú inn í mót með breiðan hóp. Mikið er til af góðum leikmönnum í Þrótti Vogum sem hljóta að setja stefnuna á að fara beint aftur upp. Sem þeir hljóta að gera.
Styrkleikar: Margir frábærir leikmenn. Góð blanda í leikmannahópnum af ungum leikmönnum og reynsluboltum. Brynjar Gestsson er frábær þjálfari og umgjörðin í Vogunum er góð.
Veikleikar: Markmannsstaðan. Nýr markmaður sem hefur verið í varahlutverki undanfarin ár. Þórhallur Ísak Guðmundsson lék með ÍH í fyrra og gerði vel, en er hann klár í toppbaráttu í 2. deild?
Lykilmenn: Ólafur Örn Eyjólfsson, Adam Árni Róbertsson, og Dagur Guðjónsson.

„Brynjar Gestsson stýrir Þrótti.“
Gaman að fylgjast með: Haukur Darri Pálsson er spennandi kantmaður sem spilaði upp yngri flokkana með Breiðabliki. Hann gæti gert góða hluti í Vogunum í sumar.
Komnir
Adam Árni Róbertsson frá Keflavík
Anton Freyr Hauks Guðlaugsson frá Haukum
Ásgeir Marinó Baldvinsson frá Þór
Einar Örn Harðarson frá ÍH
Emil Skorri Þ. Brynjólfsson frá Ými
Guðni Sigþórsson frá Magna
Gunnar Óli Björgvinsson frá ÍH
Hreinn Ingi Örnólfsson frá KV
Kári Sigfússon frá Elliða
Magnús Snær Dagbjartsson frá KV
Mirza Hasecic frá Grindavík
Ólafur Örn Ásgeirsson frá HK (á láni)
Ólafur Örn Eyjólfsson frá HK
Stefán Jón Friðriksson frá Keflavík (á láni)
Valur Þór Hákonarson frá Keflavík (á láni)
Þórhallur Ísak Guðmundsson frá ÍH (var á láni)
Farnir
Andrew James Pew í KFK
Andri Már Hermannsson í Elliða
Arnór Gauti Úlfarsson í FH (var á láni)
Freyþór Hrafn Harðarson í KV
Hans Kamta Mpongo til Englands
Markús Máni Jónsson í Árbæ
Michael Kedman til Danmerkur
Nikola Dejan Djuric í Hauka (á láni)
Oliver James Kelaart Torres í Njarðvíkur
Rafal Stefán Daníelsson í Gróttu
Unnar Ari Hansson í KFA
Þjálfarinn segir - Andri Steinn Birgisson
„Spáin er bara fín. Erum á þeim slóðum sem við bjuggumst við. Sumarið leggst mjög vel í okkur. Það hafa verið einhverjar breytingar á hópnum frá síðasta tímabili. Ég er mjög sáttur með hópinn eins og hann er í dag og við bíðum spenntir eftir að hefja mót."

„Adam Árni Róbertsson gekk í raðir Þróttar í vetur.“
Fyrstu þrír leikir Þróttar V.:
5. maí, Haukar - Þróttur V. (Ásvellir)
13. maí, Þróttur V. - KFA (Vogaídýfuvöllur)
20. maí, Sindri - Þróttur V. (Jökulfellsvöllurinn)
5. maí, Haukar - Þróttur V. (Ásvellir)
13. maí, Þróttur V. - KFA (Vogaídýfuvöllur)
20. maí, Sindri - Þróttur V. (Jökulfellsvöllurinn)

„Andy Pew fór í KFK.“

„Ólafur Örn Eyjólfsson er einn af lykilmönnum Þróttar.“

„Hvað gera Þróttarar í sumar?“