Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
banner
   mán 06. nóvember 2023 23:42
Ívan Guðjón Baldursson
Kyle McLagan aftur í Fram (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram er búið að tryggja sér þjónustu Kyle Douglas McLagan sem snýr aftur til félagsins eftir tveggja ára fjarveru.

Kyle var lykilmaður er Fram komst upp úr Lengjudeildinni fyrir tveimur árum en ákvað að endurnýja ekki samning sinn við félagið.

Hann hélt þess í stað til Víkings R. þar sem hann gerði flotta hluti, allt þar til hann sleit krossband undir lok síðasta undirbúningstímabils. Hann stefnir á að vera klár í slaginn næsta vor.

   24.10.2023 12:30
Kyle stefnir á endurkomu í mars: Á enn eftir að ná toppnum á mínum ferli


Kyle gerði þó ekki nýjan samning við Víking, sem vann Íslandsmeistaratitilinn meðan hann sat og horfði á meiddur, heldur er hann genginn aftur til liðs við Fram sem forðaðist fall annað tímabilið í röð. Þar gæti hann sinnt lykilhlutverki eftir að hann nær sér af meiðslunum.

Kyle er Bandaríkjamaður fæddur 1995. Hann leikur sem miðvörður að upplagi en er fjölhæfur og getur einnig spilað sem bakvörður.


Athugasemdir
banner
banner