Hernández svarar: Munu sjá að ég gef allt fyrir klúbbinn


Mynd: PSG


Mynd: PSG
Franski varnarmaðurinn Lucas Hernandez hefur svarað ultras stuðningsmönnum PSG sem vilja ekki að hann spili fyrir félagið.
Hernandez er fæddur í Marseille, en Olympique Marseille eru erkifjendur PSG, og hefur ekki farið leynt með stuðning sinn til félagsins í fortíðinni. Hann er sonur Jean-Francois Hernandez, sem lék fyrir Marseille frá 1995 til 1997, en Lucas fæddist í febrúar 1996.
„Stuðningsmenn munu sjá að ég gef allt fyrir klúbbinn," sagði Hernandez til að svara fyrir sig, eftir yfirlýsingu frá ultras PSG um að hann væri óvelkominn á Parc des Princes.
Fyrir fimm árum var Hernandez orðaður við PSG en sagði þá í viðtali „ég er frá Marseille og ég elska Marseille, það væri kannski flókið að fara til PSG en það getur allt gerst í þessu lífi."
Nokkrum mánuðum seinna var hann í liði Atletico Madrid sem lagði Marseille að velli í úrslitaleik Evrópudeildarinnar. „Ég hef alltaf verið frá Marseille og er svekktur fyrir hönd félagsins að tapa þessum leik," sagði hann meðal annars þrátt fyrir að hafa verið í sigurliðinu.
Sjá einnig:
Stuðningsmenn PSG vilja ekki sjá Lucas - „Ert ekki velkominn"
Á leið til Parísar þrátt fyrir óánægju stuðningsmanna
PSG kaupir Hernandez frá Bayern (Staðfest)






