Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   fim 16. apríl 2020 16:15
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Andri Fannar heillaður af sigurvegaranum Sinisa Mihajlovic
Mynd: Getty Images
„Þetta er ein af mestu sigurvegurum sem ég hef kynnst," sagði Andri Fannar Baldursson, leikmaður Bologna, um þjálfara sinn SInisa Mihajlovic þegar hann var í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net í dag.

Sinisa greindist með hvítblæði í fyrrasumar en hann sneri aftur á varamannabekk Bologna í desember eftir beinmergsígræðslu.

„Hann hættir ekkert, hann vill halda áfram og berjast fyrir sínu. Þegar hann var frá þá var hann á spítalanum á Skype að tala við okkur og hvetja okkur áfram. "

„Hann rífur kjaft en það er líka stutt í djókið hjá honum. Ég er heillaður af honum."

„Það hlýða honum allir og hann er með mikla virðingu frá hinum leikmönnunum og liðunum í deildinni."


Á ferli sínum skoraði Sinisa mörg stórkostleg mörk úr aukaspyrnum í Serie A. „Hann tekur stundum sjálfur skot eftir æfingar og það er alltaf gaman að fylgjast með honum," sagði Andri Fannar.

Sinisa Mihajlovic tók við Bologna í janúar í fyrra en hann tók við af Filippo Inzaghi sem hafði verið í vandræðum með liðið.

Hér að neðan má hlusta á viðtalið í heild sinni.
Útvarpsþátturinn - Bjarni Jó og Andri Fannar
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner