Fotbolti.net
23.12.23 - 17:06
Elvar Geir Magnússon

Osimhen framlengdi við Napoli (Staðfest)

Osimhen framlengdi við Napoli (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nígeríski sóknarmaðurinn Victor Osimhen hefur skrifað undir nýjan samning við Napoli og framlengt samning sinn við félagið til 2026. Ítalskir fjölmiðlar segja að laun hans rúmlega tvöfaldist með nýja samningnum.

Samningurinn bindur enda á óvissu um framtíð Osumhen sem var nýlega krýndur sem leikmaður ársins í Afríku.
Osimhen framlengdi við Napoli (Staðfest)
TENGT EFNI

Osimhen framlengdi við Napoli (Staðfest)

Talað er um að Napoli hafi hafnað yfir 200 milljóna evra tilboði í Osimhen frá félagi í Sádi-Arabíu.

Osimhen verður 25 ára í næstu viku en hann var keyptur frá Lille árið 2020. Hann er meðal mest spennandi sóknarmanna heims og hjálpaði Napoli að vinna ítalska meistaratitilinn á síðasta tímabili. Mörkin hans 26 gerðu það að verkum að hann varð fyrsti Afríkumaðurinn til að verða markahæstur í ítölsku A-deildinni.

Osimhen átti frekar erfiða byrjun á tímabilinu og virtist vera á útleið frá félaginu þegar hann eyddi nánast öllum myndum af sér í Napoli treyjunni af samfélagsmiðlum sínum í september eftir að félagið gerði grín að honum í myndbandi.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio11+1629
2Inter11+1528
3Roma11+2127
4Milan11+1024
5Como11+823
6Frosinone11+920
7Juventus11+318
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli11+415
11Torino11-214
12Atalanta11-314
13Genoa11-513
14Lecce11-1010
15Fiorentina11-89
16Parma11-88
17Sassuolo11-138
18Monza11-87
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.