lau 27.feb 2021 13:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|
Karólína í einu stærsta félagi veraldar: Lífið breyst mikið við nýja áskorun
Landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir gekk nýverið í raðir þýska stórveldisins Bayern München og hefur núna upplifað það að vera leikmaður eins stærsta félags veraldar í nokkrar vikur.
Karólína, sem er 19 ára, er uppalin í Fimleikafélagi Hafnarfjarðar og skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild aðeins 14 ára gömul. Eftir tvö tímabil í efstu deild með FH, þá samdi hún við Breiðablik. Þar varð hún Íslandsmeistari tvisvar og bikarmeistari einu sinni. Eftir að hafa brotið sér leið inn í byrjunarlið íslenska landsliðsins á síðasta ári bauðst henni tækifæri sem erfitt var að hafna.
Karólína Lea spjallaði við Fótbolta.net um ferilinn til þessa, fyrstu vikurnar í Þýskalandi og sitthvað fleira.
'Ég trúi því að ég geti hjálpað liðinu sama hvaða hlutverk ég fæ á þessu tímabili. Mitt markmið núna er að koma mér meira og meira inn í hlutina.'
Karólína gekk í raðir Breiðablik fyrir tímabilið 2018. Hér er hún í bikarúrslitaleiknum 2018 gegn Stjörnunni. Blikar unnu leikinn 2-1.
'Ég er hrikalega stolt að hafa fengið tækifæri til að spila fyrir hönd Íslands og vonandi er þetta bara byrjunin hjá mér í bláa búningnum'
'Lykillinn að því að ég náði markmiðinu að byrja minn fyrsta A-landsleik var blanda af vinnusemi og þrautseigju af minni hálfu, en einnig miklu trausti og trú frá þjálfara liðsins'
„Fyrstu vikurnar hafa verið krefjandi og lærdómsríkar en líka skemmtilegar"
Ekki hægt að segja nei við Bayern
Bayern München er risastórt knattspyrnufélag. Kvennalið félagsins hefur þrisvar orðið deildarmeistari í Þýskalandi og einu sinni bikarmeistari. Karólína ætlaði sér upprunalega að taka eitt tímabil í viðbót heima á Íslandi en segir að það hafi í rauninni ekki verið hægt að svara Bayern neitandi.
„Það var eiginlega ekki hægt að segja nei við þessu frábæra tækifæri. FC Bayern er fyrirmyndar félag og það er allt upp á 10 hérna. Það er lagt mikið upp úr því að leikmönnum líði vel og ég finn fyrir því að félagið er ein stór fjölskylda," segir landsliðskonan efnilega.
„Það var eitt og eitt félag á Norðurlöndum sem höfðu áhuga en ég ætlaði alltaf að taka eitt tímabil í viðbót heima og skoða svo möguleika eftir næsta tímabil. Ég pældi ekki mikið í þessu og var ekki mikið að spá í neinu fyrr en að Gylfi, umboðsmaður minn, hringdi í mig og sagði mér að Bayern München hefði áhuga á að kaupa mig frá Breiðablik. Ég fann þá að ég var tilbúin fyrir nýja áskorun í líf mitt."
Hún er núna í fyrsta sinn að upplifa að vera atvinnumaður í fótbolta. Karólína flutti ein út til Þýskalands og mikið breyst í hennar lífi.
„Fyrstu vikurnar hafa verið krefjandi og lærdómsríkar en líka skemmtilegar. Ég flutti ein út og hef þurft að sjá um mig alveg sjálf þannig að líf mitt hefur breyst alveg gríðarlega enda vön því að fá mikla þjónustu og alveg dekruð í drasl hjá mömmu og pabba. Ég hef samt sem áður fílað þennan lífsstíl alveg í botn og það hefur alltaf verið draumur að fara í atvinnumennsku."
Bayern besta lið Þýskalands um þessar mundir
Wolfsburg hefur tekið gullið í þýsku úrvalsdeildinni síðustu fjögur árin og Bayern lent í öðru sæti í öll skiptin. Í ár gæti orðið breyting á því Bayern er á toppnum með fimm stiga forystu á Wolfsburg eftir 14 leiki. Bayern hefur unnið alla sína leiki í deildinni til þessa og því er hægt að segja að liðið sé besta liðið í Þýskalandi um þessar mundir. Þýska deildin er gríðarlega sterk.
Karólína kom meidd til félagsins en hún stefnir á að hjálpa því í titilbaráttunni á seinni hluta tímabilsins. Bayern er líka komið í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar þar sem það mætir BIIK Kazygurt frá Kasakstan.
„Liðið er búið að spila mjög vel og lítur ekkert smá vel út. Ég trúi því að ég geti hjálpað liðinu sama hvaða hlutverk ég fæ á þessu tímabili. Mitt markmið núna er að koma mér meira og meira inn í hlutina. Ég kom meidd til félagsins og var í mánuð í svokölluðu 'rehab' sem er aðeins fyrir meidda leikmenn. Það hefur verið erfitt að geta ekki sýnt sig og sannað fyrsta mánuðinn en vonandi helst ég heil og get unnið mig smátt og smátt inn í þetta. Svo markmiðið akkúrat núna er að komast í hópinn og spila minn fyrsta leik fyrir félagið."
Stefna Bayern er ekki flókin; að vinna titla. „Stefna FC Bayern er auðvitað að vinna titla og komast sem lengst í Meistaradeildinni. Það eru miklar kröfur hérna enda risa félag. Ég hef fulla trú á að félagið sé bara að styrkjast með árunum. Í liðinu er góð blanda af ungum og svo reynslumeiri leikmönnum, og ég er spennt fyrir komandi árum hjá félaginu."
Sinnir námi meðfram fótboltanum
Samhliða því að vera á mála hjá Bayern, þá sinnir Karólína hagfræðinámi við Háskóla Íslands.
„Ég er nemandi við hagfræðideild Háskóla Íslands. Það fer mikil orka í æfingar þessa dagana og ég hef ekki getað sinnt náminu eins vel og ég vildi en ég mun klárlega mennta mig samhliða fótboltanum," segir hún og bætir við:
„Ég er mikið að aðlagast núna þessum nýja lífsstíl, að búa ein, þurfa hugsa um íbúð og öllu því sem tengist að flytja út. Ég er líka í þýsku tímum tvisvar í viku þannig það er nóg að gera hjá mér utan fótboltans."
Skoraði 14 ára í efstu deild
Þegar nafn Karólínu er skrifað í leitarkerfinu hér á síðunni og farið til baka er ein af fyrstu fréttunum frá 2016 þegar hún skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild. Þá var hún 14 ára gömul. Fyrirsögnin er: Fædd 2001 og skoraði sigurmark í Pepsi deildinni og í fyrstu setningunni segir: „Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er nafn sem fylgjendur fótbolta á Íslandi ættu að leggja á minnið." Hún lék þá sinn fyrsta leik í efstu deild og skoraði sigurmark FH gegn ÍA er hún kláraði færi sitt eins og reyndur framherji. Nokkrum árum síðar var fótboltaunnendum víðs vegar um heiminn bent á að leggja hennar nafn á minnið.
„Það var ekkert smá gaman," segir Karólína um það að fá mínútur í efstu deild svona ung að árum en þetta sumar spilaði hún 14 leiki í efstu deild.
„Ég fékk strax mikið traust frá Orra þjálfara og hann var óhræddur að spila ungum leikmönnum sem mér finnst mikill kostur. Ég er afar þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri svona ung í efstu deild og það styrkti mig mikið sem leikmann, bæði andlega og líkamlega."
„Ég átti frábær ár í FH og kynntist æðislegum stelpum og þjálfurum. FH á risastórt pláss í hjarta mínu og mér mun alltaf þykja vænt um uppeldisfélagið mitt," segir Karólína sem fór í Breiðablik fyrir tímabilið 2018 eftir að hafa spilað tvær leiktíðir með FH í efstu deild.
„Ég ákvað að fara í Breiðablik því mig langaði í nýja áskorun og til að taka næsta skref í fótboltanum. Það var samt rosalega erfitt að fara frá FH og ég þurfti alveg dágóðan tíma til að hugsa mig um. Foreldrar mínir voru á því að ég ætti að prófa að fara í Breiðablik enda er pabbi minn mikill Bliki. Ég hef líka alltaf átt gott samband við Úlla hjá Breiðablik og ætli það hafi ekki verið hann sem náði að sannfæra mig að lokum."
Tveir Íslandsmeistaratitlar og einn bikarmeistaratitill
Tíminn hjá Breiðablik er ekki eitthvað sem Karólína sér eftir, langt því frá. Þar þróaðist hún sem fótboltakona og vann tvo Íslandsmeistaratitla, og einn bikarmeistaratitil. Þá var hún hluti af liði sem komst í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar árið 2019.
„Ég sé klárlega ekki eftir þessu í dag og ég er ánægð að hafa tekið þetta skref. Tíminn hjá Breiðablik var frábær og umgjörðin hjá félaginu er til fyrirmyndar. Ég öðlaðist mikla reynslu og kynntist einstöku fólki."
„Titlarnir sem við unnum og Meistaradeildarævintýrið er ofarlega í huga yfir bestu augnablikin en það sem stendur helst upp úr eru stelpurnar sem ég kynntist og allt magnaða fólkið í kringum liðið," segir Karólína.
Kemur úr mikilli fótboltafjölskyldu
Karólína kemur úr mikilli fótboltafjölskyldu. Faðir hennar, Vilhjálmur Kári Haraldsson, er reyndur fótboltaþjálfari sem tók nýverið við kvennaliði Breiðabliks, Gylfi Þór Sigurðsson er frændi hennar og Dóra María Lárusdóttir er einnig í fjölskyldunni. Gylfi og Dóra María eru bæði þaulreynt landsliðsfólk og frábærar fyrirmyndir að mati Karólínu. Hún segir það þó svekkjandi að hafa ekki fengið að spila með Dóru enn sem komið er, en hún hefur nokkrum sinnum spilað á móti henni.
„Ég er heppin að hafa margar fyrirmyndir í fjölskyldunni og Dóra María er ein af þeim. Hún er fyrirmynd út af svo mörgum ástæðum. Fyrst og fremst er hún mögnuð í fótbolta eins og allir vita en hún er líka svo frábær karakter, hógvær, hugsar vel um sig og er mikill leiðtogi. Það var alltaf gaman að mæta henni, sérstaklega þegar ég var að byrja í meistaraflokki."
„Þegar ég hugsa út í það núna þá er ég frekar svekkt að hafa aldrei fengið að spila með henni en hver veit hvað gerist í framtíðinni."
Ólýsanlegt að spila með landsliðinu
Karólína spilaði fyrsta A-landsleikinn gegn Finnlandi árið 2019 þar sem hún kom inn á sem varamaður í vináttulandsleik. Eftir að hafa spilað mjög vel með Breiðablik á síðustu leiktíð var hún valin í landsliðið fyrir mikilvæga leiki í undankeppni EM.
Hún byrjaði í 9-0 sigri á Lettlandi og spilaði frábærlega. Með því að spila vel þar hélt hún sæti sínu í byrjunarliðinu í næsta leikgegn Svíþjóð, sem er með ógnarsterkt lið. Ísland spilaði frábærlega í þeim leik og gerði 1-1 jafntefli. Eftir leikinn var talað um það í sænskum fjölmiðlum að fótboltaáhugamenn ættu að leggja nafn Karólínu á minnið. Ekki í fyrsta sinn sem það var sagt, en þarna rötuðu þessi orð út fyrir landsteinanna. Hún hjálpaði Íslandi að komast á EM sem haldið verður í Englandi 2022, en hvernig er það að spila fyrir landsliðið?
„Það að spila mína fyrstu A-landsleiki var ólýsanleg tilfinning. Ég er hrikalega stolt að hafa fengið tækifæri til að spila fyrir hönd Íslands og vonandi er þetta bara byrjunin hjá mér í bláa búningnum," segir þessi 19 ára gamla fótboltakona.
Þorsteinn Halldórsson tók nýverið við íslenska landsliðinu en Karólína þekkir hann vel þar sem hann var þjálfari hennar hjá Blikum.
„Steini er frábær þjálfari. Hann er mjög yfirvegaður og rólegur og það er mjög þægilegt að hafa hann sem þjálfara. Hann getur auðvitað æst sig ef það er eitthvað sem honum líst ekki á, en yfirleitt rennur ekki í honum blóðið. Ég held að hann passi fullkomlega inn í nýja starfið og ég veit að hópurinn er mjög ánægður með að hafa fengið hann."
Markmið mjög mikilvæg
Faðir Karólínu, Vilhjálmur Kári, birti skemmtilega færslu á Twitter eftir að dóttir hans byrjaði sína fyrstu landsleiki á síðasta ári. Hún setti sér langtímamarkmið þegar hún var nemandi í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði og sagði Vilhjálmur frá því hvað markmiðið hefði verið.
„Ég ætla að spila A-landsleik í byrjunarliði eftir 1 ár," skrifaði Karólína árið 2019. „Ég stefni á að spila byrjunarliðsleik í A-landsliðinu í október 2020."
Hún náði þessu markmiði sínu þegar hún hjálpaði Íslandi að komast á EM. Henni finnst mikilvægt að vinna að ákveðnum markmiðum.
„Mér finnst það mjög mikilvægt. Ég ólst upp við að setja mér alltaf markmið og ég fann að það hjálpaði mér. Ég set mér nokkur skammtíma markmið og eitt langtíma markmið sem ég hef alltaf bak við eyrað. Ég lærði líka helling í íþróttasálfræði í Flensborg um markmiðssetningu og hugarþjálfun sem ég hef mikinn áhuga á."
„Lykillinn að því að ég náði markmiðinu að byrja minn fyrsta A-landsleik var blanda af vinnusemi og þrautseigju af minni hálfu, en einnig miklu trausti og trú frá þjálfara liðsins," segir þessi hæfileikaríka fótboltakona.
Eftir að hafa byrjað að spila og skora mörk í efstu deild á Íslandi 14 ára gömul eru næstu skref hjá henni núna - fimm árum síðar - að aðlagast því að vera atvinnumaður hjá einu stærsta fótboltafélagi veraldar.
Servus Karólína Lea Vilhjálmsdóttir! 👋#MiaSanMia #FCBayern #Training pic.twitter.com/WciZkFOWPx
— FC Bayern Frauen (@FCBfrauen) February 12, 2021
Athugasemdir