Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
banner
   fim 17. nóvember 2016 20:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
„Hef sagt það 200 milljón sinnum að Zlatan er ekki frábær"
Christophe Dugarry
Christophe Dugarry
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic á fullt af aðdáendum um heim allan en fyrrum framherji franska landsliðsins, Christophe Dugarry er ekki einn af þeim.

Dugarry spilaði með Birmingham á Englandi en hann er ekki sérstaklega hrifinn af Zlatan.

Hann segir leikmenn eins og Lionel Messi séu stórkostlegir en leikmenn eins og Zlatan, sem hann segir búa til of mikið af fyrirsögnum utan vallar, sé ekki hægt að kalla frábæra.

„Zlatan er ekki frábær leikmaður. Ég hef sagt það 200 milljón sinnum. Frábærir leikmenn eru ekki vandræðagemsar og gera aðra leikmenn í kringum sig betri. Lítum á Lionel Messi, hann er stórkostlegur leikmaður og það er ekki vesen á honum."

Dugarry hefur kannski gleymt að Messi fékk dóm fyrir skattsvik.
Athugasemdir
banner
banner