Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
Gunnar Heiðar: Það þurfti mikla þolinmæði
Dragan: Eigum ekki að fá á okkur svona mark en svona er fótboltinn
Jóhann Kristinn: Nú má Sandra fara að vara sig
Selma: Ætluðum að mæta tvíefldar til leiks
Sandra María: Gaman að fá ný nöfn í þetta
Egill Orri skoðar skóla í Danmörku - „Ætla gera mitt besta hjá Þór þangað til"
Ætlaði allt um koll að keyra á Akureyri - „Stuðningsmennirnir alveg geggjaðir"
„Búinn að breytast í Usain Bolt ef hann er að fara ná boltanum"
Arna Eiríks: Mig langaði eiginlega bara að fara gráta
Stórt kvöld fyrir Berglindi - „Svo vonandi hringir Steini"
Pétur Péturs: Þannig með góða leikmenn þú tekur oft fastar á þeim
Agla María: Ótrúlega góð kaup hjá Breiðabliki
Óli Kristjáns: Eins ógeðslegt og það verður
Kristján svekktur: Ætla ekki að trúa því að þetta komi fyrir aftur
Kristrún Ýr: Skemmti mér vel að spila þennan leik
Guðni Eiríks: Sól og blíða og gleði í FH hjörtum í dag
Heiða eftir stórsigur gegn gamla liðinu: Var ógeðslega erfið ákvörðun
Guðni: Hundfúl að vera á heimavelli og vinna ekki fyrsta leik
Dagur í lífi Eyþórs Wöhler - Sjósund með GEmil og goðsögn heimsótt
Alls ekki byrjunin sem ÍR ætlaði sér - „Eigum að vera sterkari en þetta"
   fim 29. júní 2017 09:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Baldur Sig: Við erum mjög peppaðir
Baldur verður í eldlínunni í Evrópudeildinni í kvöld.
Baldur verður í eldlínunni í Evrópudeildinni í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Spenningurinn er mikill, eins og alltaf, en hófstilltur. Við erum klárir í þetta," sagði Baldur Sigurðsson, leikmaður Stjörnunnar, fyrir leikinn gegn Shamrock Rovers í forkeppni Evrópudeildarinnar, sem fram fer á Samsung vellinum í Garðabæ í kvöld.

Þetta er fyrri leikur liðanna en sá seinni verður leikinn út í Írlandi eftir viku. Stjarnan þarf góð úrslit í kvöld.

„Evrópukeppnin er alltaf skemmtileg og gefur sumrinu smá krydd, maður kúplar sig út úr deildinni. Þessi klúbbur þekkir það vel að ganga vel í Evrópukeppni og þetta getur verið mikið ævintýri."

„Við ætlum að reyna að nýta okkur þetta vel og ná góðum úrslitum á móti þessu írska liði."

Baldur segist vera með nokkuð góða mynd af því hvernig þetta írska lið spilar fótbolta.

„Okkar þjálfarateymi er búið að sýna okkur virkilega mikið af klippum frá þeim og við erum komnir með nokkuð góða mynd af því hvernig þeir spila. Þeir eru náttúrulega alltaf kraftmiklir og fínir í fótbolta. Við þurfum að mæta vel stemmdir."

Baldur vill sjá alvöru stemningu í stúkunni í kvöld.

„Ég hvet alla Garðbæinga til að koma á völlinn. Við lofum því að spila góðan leik, við ætlum að leggja okkur fram og gera allt til þess að heilla áhorfendur. Við erum mjög peppaðir fyrir þessum leik. Ég vona að það verði uppselt."

Hitað verður upp fyrir leikinn fyrir utan Mathúsið í Garðabæ í dag með hoppukastala og fjöri.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner