Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
   sun 11. febrúar 2018 12:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Birkir settur á bekkinn - Stuðningsmenn gáttaðir
Mynd: Getty Images
Einn stærsti leikur tímabilsins í Championship-deildinni var að hefjast, Aston Villa er að spila gegn Birmingham. Þetta er leikur sem allir leikmenn vilja spila í enda grannaslagur af bestu gerð.

Birkir Bjarnason hefur verið frábær í síðustu leikjum Aston Villa og fengið mikið lof fyrir sína frammistöðu. Hann hefur blómstað í nýju hlutverki sem varnarsinnaður miðjumaður.

Hann byrjar þó á bekknum í dag!

Steve Bruce, stjóri Aston Villa, gerir eina breytingu á liðinu. Mile Jedinak byrjar á kostnað Birkis.

Stuðningsmenn Villa eiga bágt með að skilja þessa ákvörðun þar sem Birkir hefur verið að spila ótrúlega vel.















Athugasemdir
banner
banner