DT er þekktur meðal þeirra sem fylgjast með vefsjónvarpinu Arsenal Fan TV en hann var í viðtali eftir 5-1 skellinn gegn Bayern München í gær.
DT hefur lengi verið á því að Arsene Wenger eigi að yfirgefa Arsenal og mætti með borða fyrir ári síðan þar sem hann heimtaði Frakkann burt.
Í viðtalinu í gær varð DT vægast sagt reiður þegar hann fór yfir málin og sagði að það væri sama sagan með liðið. Hann bað Wenger um að stíga frá borði og kallaði hann risaeðlu.
Svo fær Mesut Özil að heyra það en þetta skrautlega viðtal er hér að neðan.
Sjá einnig:
Innkastið - Hreinsanir þarfar hjá Arsenal
Er það hagur Arsenal að Wenger láti sem fyrst af störfum? #fotboltinet
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) February 16, 2017
Athugasemdir