Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
banner
   mán 17. október 2016 21:33
Jóhann Ingi Hafþórsson
Jose Mourinho: Við stjórnuðum leiknum
Jose Mourinho
Jose Mourinho
Mynd: Getty Images
„Þetta var mjög erfiður leikur en hann var erfiðari fyrir þá en okkur. Við stjórnuðum leiknum á löngum köflum. Við byrjuðum vel og höfðum stjórn," sagði Jose Mourinho, stjóri Manchester United eftir markalaust jafntefli við Liverpool á Anfield í kvöld.

Liverpool fékk hættulegustu færi leikins og var mikið meira með boltann en Mourinho segir sína menn hafa verið líklega til að skora og vinna leikinn.

„David de Gea varði vel en það var aldrei hætta þar sem við vorum með fulla stjórn. Við gerðum vel varnarlega. Við fengum góð færi og ég hélt að Zlatan myndi skora en það vantaði meiri ógn."

„Við vildum ekki stjórna boltanum allan tíman, við vissum að þeir myndu pressa og við vissum að þeir myndu pressa okkur hátt um leið og þeir missa boltann. Við þurfum að aðlagast því en ég hélt allan leikinn að við myndum skora og vinna leikinn en þeir eru með gott lið," sagði Mourinho.
Athugasemdir
banner