Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   þri 18. júlí 2017 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimsmeistari leitar að nýju liði á LinkedIn
Zaccardo varð heimsmeistari með Ítalíu árið 2006.
Zaccardo varð heimsmeistari með Ítalíu árið 2006.
Mynd: Getty Images
Cristian Zaccardo, fyrrum landsliðsmaður Ítalíu, er að leita sér að vinnu. Hann hefur birt ferilskrá sína á LinkedIn, en það er vefsíða þar sem fólk getur birt ferilskrár sínar í von um vinnu.

Hinn 35 ára gamli Zaccardo er með heimsmeistaratitil á ferilskránni!

Hann spilaði þrjá leiki á heimsmeistaramótinu árið 2006 þegar Ítalía fór alla leið og vann Frakkland í úrslitaleiknum.

Hann er í augnablikinu án liðs eftir að hafa spilað með Vicenza í Seríu B á síðasta tímabili. Vicenza féll og Zaccardo ætlar í annað lið.

Zaccardo hefur verið öðruvísi leið í leit að nýju liði.

„Ég rifti samningi mínum við Vicenza," skrifar Zaccardo á vefsíðuna. „Ég er fótboltmaður án liðs."

„Ég er í góðu líkamlegu standi og get spilað á hæsta stigi í tvö ár í viðbót. Hver vill gera samning við mig?"
Athugasemdir
banner
banner