Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
„Markmiðið er að komast í umspil og fara upp“
Bestur í Mjólkurbikarnum: Töfrar gegn einu besta liði landsins
Haraldur Einar: Hefði ekkert verið hrikalegt að vera áfram í FH
Gaman að vera hluti af sérstökum díl í íslenskri knattspyrnu
Súrsæt tilfinning eftir sigur - „Getum betur og eigum að gera betur“
Varð aldrei stressaður - „Leikurinn gat farið hvernig sem er“
Hetja Garðbæinga: Þetta var helvíti laust en inn fór hann
Rúnar Páll kaldhæðinn: Ég fæ alltaf spjald - Elska þessa nýju línu
Rúnar: Viktor er markaskorari af guðs náð
Arnar: Erum búnir að misstíga okkur í tvígang og gerum það aftur hér
Gregg Ryder svekktur: Guy þarf að vera ofarlega á vellinum
Dóri skýtur á fyrrum lærisvein: Fannst Wöhlerinn dýfa sér
Leið eins og í Keanu Reeves mynd - „Serbinn þarf bara aðeins að róa sig“
Axel urðaði yfir Patrik - „Bara ástríða"
Damir: Ekki sama þegar einhver er að meiða liðsfélaga minn viljandi
Aron Elís um vítaspyrnudóminn: Hann rænir upplögðu marktækifæri og það er bara rautt spjald
Haddi: Við eigum mögulega að fá 2-3 víti
Arnar Gunnlaugs: Hann hefði örugglega getað dæmt fleiri víti
„Þetta er eiginlega nýtt sport sem maður þarf að venjast“
Brjálaður út í dómgæsluna - „Algjörlega úr takt við leikinn“
   fim 19. apríl 2018 18:26
Helgi Fannar Sigurðsson
Kristján Ómar: Við erum Grindavík 1. deildarinnar
Kristján segir Hauka þurfa að sanna að fleiri geti skorað mörk en Björgvin Stefánsson.
Kristján segir Hauka þurfa að sanna að fleiri geti skorað mörk en Björgvin Stefánsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristján Ómar Björnsson var nokkuð sáttur með leik sinna manna gegn Vestra í dag en leikurinn fór 3-1 fyrir Hauka sem eru þar með komnir áfram í næstu umferð Mjólkurbikarsins.

„Við vorum fínir í dag, svolítið lengi í gang og smá hrollur í mönnum, það var fínt að hrista það af sér í bikarleik." sagði Kristján Ómar við Fótbolta.net.

Lestu um leikinn: Haukar 3 -  1 Vestri

„Vestri er hörkulið, þeir eru búnir að bæta sig mikið frá því að við mættum þeim í vetur, þá unnu þeir okkur 2-0 svo við hljótum að vera búnir að bæta okkur."

„Við erum í rauninni Grindavík 1.deildarinnar, við þurfum að sanna að einhver annar en Björgvin Stefánsson geti skorað.", sagði Kristján aðspurður að því hvernig sóknarleikur liðsins yrði í sumar.

Kristján ræddi að lokum aðeins um Þóri Jóhann Helgason sem fór yfir í FH á dögunum.

„Við fögnum því bara að FH líti yfir lækinn og að eitt besta lið landsins vilji fá leikmann frá Haukum. Þá hljótum við að vera að gera eitthvað rétt."

Viðtalið í heild sinni má sjá í meðfylgjandi myndbandi.

Athugasemdir
banner
banner