Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   lau 23. mars 2024 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Framtíð Mbappe mun koma í ljós fyrir Evrópumótið
Mynd: EPA

Framtíð Kylian Mbappe hefur verið í lausu lofti ansi lengi en það er orðið ljóst að hann mun ekki spila með PSG á næstu leiktíð.


Það virðist vera opinbert leyndarmál að hann muni semja við Real Madrid í sumar en hann hefur haldið spilunum þétt að sér og hefur ekkert viljað gefa upp um framtíð sína.

Hann tjáði sig við fréttamenn í gær fyrir leik franska landsliðsins gegn Þýskalandi sem mætast í æfingaleik í kvöld. Þar sagði hann að það verði ljóst hvað hann muni gera fyrir Evrópumótið í Þýskalandi sem hefst um miðjan júní.

Ólympíuleikarnir hefjast rúmum mánuði síðar en landsliðin tefla þar fram u23 ára liðum auk nokkurra eldri leikmanna. Mbappe segist dreyma um að taka þátt á mótinu en hefur ekki fengið staðfestingu á því að hann sé í hópnum.


Athugasemdir
banner
banner