Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
   fim 23. júlí 2015 10:55
Magnús Már Einarsson
Ronaldo strax orðinn pirraður á Benítez
Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo er strax orðinn pirraður á Rafael Benítez, nýráðnum þjálfara Real Madrid, ef marka má viðbrögð hans á æfingum undanfarna daga.

Spænskir fjölmiðlar segja að Ronaldo hafi látið Benítez heyra það á dögunum þar sem hann telur að einungis portúgölskum leikmönnum sé refsað fyrir brot á æfingum.

Ronaldo var síðan allt annað en skemmt þegar Benítez var með sláarkeppni á æfingu í gær þar sem leikmenn áttu að hitta í slána.

„Boltinn á að fara þarna inn, í netið," sagði Ronaldo við Benítez áður en hann bætti við nokkrum blótsyrðum.

Hér að neðan má sjá myndband af sláarkeppninni.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner