KR 1 - 1 Völsungur
1-0 Fanney Rún Guðmundsdóttir ('37 )
1-1 Halla Bríet Kristjánsdóttir ('44 )
KR stóð uppi sem sigurvegari í riðli tvö í C deild Lengjubikars kvenna eftir jafntefli gegn Völsungi í dag.
Leikurinn fór fram á KR-velli en Völsungur átti ekki möguleika á að komast áfram. Heimakonur náðu forystunni en Halla Bríet Kristjánsdóttir jafnaði fyrir Völsung en hún er fædd árið 2008.
Fleiri mörk litu ekki dagsins ljós og jafntefli því niðurstaðan.
KR endar á toppnum með tíu stig en ÍH fylgir liðinu í undanúrslit en ÍH endar með níu stig í öðru sæti.
Lengjubikar kvenna - C-deild, riðill 2
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. KR | 4 | 3 | 1 | 0 | 12 - 6 | +6 | 10 |
2. ÍH | 4 | 3 | 0 | 1 | 8 - 5 | +3 | 9 |
3. Völsungur | 4 | 1 | 1 | 2 | 6 - 6 | 0 | 4 |
4. Augnablik | 4 | 1 | 0 | 3 | 6 - 10 | -4 | 3 |
5. Einherji | 4 | 1 | 0 | 3 | 3 - 8 | -5 | 3 |
Athugasemdir