Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   mið 24. desember 2014 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Lambert vonast til að kaupa Cleverley í janúar
Aston Villa vonast til að halda Cleverley.
Aston Villa vonast til að halda Cleverley.
Mynd: Getty Images
Paul Lambert, stjóri Aston Villa, vonast til að virkja klásúlu í lánssamningi Tom Cleverley í janúar og kaupa hann frá Manchester United fyrir 7,5 milljónir evra.

Enski miðjumaðurinn er á láni á Villa Park út tímabilið, en félagið er með forkaupsrétt á honum. Cleverley verður hins vegar samningslaus í sumar og gæti þá farið frítt frá United, en Villa gæti verið tilbúið að borga fyrir að tryggja sér áframhaldandi þjónustu hans.

,,Við höfum þann möguleika að kaupa hann í janúar. Ég mun klárlega reyna, en fjármálin skipta miklu máli. Ég er sannfærður um að eigandinn skoði það ef hann telur þessi kaup vera rétt fyrir félagið," sagði Lambert.

,,Ég þarf líka að ræða þetta við Tom, við höfum enn ekki rætt þetta í þaula. Hann er enn leikmaður Manchester United, en ég er allavega með hann út tímabilið. Hann hefur aðlagast frábærlega og nær mjög vel saman við strákana."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner