Arsenal er sagt vera að undirbúa tilboð í Morgan Gibbs-White, miðjumann Nottingham Forest.
Enska götublaðið Daily Star segir að Arsenal sé að fylgjast með stöðu mála hjá miðjumanninum.
Fjögur stig voru tekin af Nottingham Forest á dögunum þar sem félagið braut fjárhagsreglur ensku úrvalsdeildarinnar.
Forest gæti þurft að selja lykilmenn fyrir 30. júní næstkomandi til að forðast frekari refsingar en það er í skoðun hjá félaginu.
Gibbs-White er klárlega leikmaður sem Forest gæti selt en það hefur verið fjallað um það á Englandi að félagið muni biðja um að minnsta kosti 50 milljónir punda fyrir þennan öfluga miðjumann.
Athugasemdir