Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fim 25. maí 2017 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Sonur Klinsmann með slæm mistök
Jonathan Klinsmann í leiknum gegn Ekvador
Jonathan Klinsmann í leiknum gegn Ekvador
Mynd: Getty Images
Jonathan Klinsmann, markvörður bandaríska U20 ára landsliðsins í knattspyrnu, gerði sig sekan um slæm mistök í 3-3 jafntefli liðsins gegn Ekvador á HM U20 ára landsliða á dögunum.

Klinsmann, sem er sonur fyrrverandi þjálfara bandaríska aðalandsliðsins, hefur staðið vaktina í markinu hjá U20 ára landsliðinu á heimsmeistaramótinu sem er í gangi þessa dagana.

Everton hefur þegar boðið leikmanninum á reynslu en Tim Howard, landsliðsmarkvörður Bandaríkjanna, var eitt sinn á mála hjá félaginu.

Klinsmann gerði hins vegar klaufaleg mistök í leiknum gegn Ekvador en þau má sjá hér fyrir neðan.



Athugasemdir
banner
banner