Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fim 25. desember 2014 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Rooney ánægður með jólafríið sem Van Gaal gaf leikmönnum
Wayne Rooney
Wayne Rooney
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney, leikmaður Manchester United á Englandi, þakkar Louis van Gaal, stjóra liðsins, fyrir að gefa leikmönnum liðsins frí í gær.

Manchester United mætir Newcastle United á Old Trafford á morgun en liðið vonast til þess að halda góðu gengi áfram.

Leikmenn liðsins fengu því frí í gær til þess að vera með fjölskyldum sínum en Rooney þakkaði Van Gaal kærlega fyrir fríið.

,,Við æfðum ekki á aðfangadag í ár því við eyddum deginum heima með fjölskyldunni sem er gott fyrir erlendu leikmennina í liðinu og okkur hina sem eigum börn," sagði Rooney.

,,Það er eflaust skrítið fyrir nýja leikmenn sem koma inn að spila svona mikið um jólin þar sem þeir eru vanir því að spila minna milla jóla- og nýárs," sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner