Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
   lau 30. mars 2024 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn í dag - Barcelona getur sett pressu á Real Madrid
Mynd: EPA
Það eru fjórir leikir á dagskrá í spænska boltanum í dag þar sem Getafe og Sevilla eigast við í fyrsta leik dagsins.

Sevilla er aðeins þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið, á meðan Getafe er tíu stigum þar fyrir ofan og getur reynt að lauma sér í evrópubaráttuna með nokkrum sigrum í röð í næstu leikjum.

Botnlið Almeria vann sinn fyrsta deildarleik á tímabilinu í síðustu umferð og tekur á móti spræku liði Osasuna í dag, áður en Valencia og Mallorca eigast við.

Valencia er í leit að sigri í baráttunni um evrópusæti á meðan Mallorca er fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Barcelona spilar við Las Palmas í lokaleik kvöldsins, þar sem Börsungar geta unnið sinn þriðja deildarleik í röð og minnkað bilið á milli sín og toppliðs Real Madrid niður í fimm stig. Las Palmas hefur gengið herfilega að undanförnu og er liðið að missa af evrópubaráttunni.

Leikir dagsins:
13:00 Getafe - Sevilla
15:15 Almeria - Osasuna
17:30 Valencia - Mallorca
20:00 Barcelona - Las Palmas
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 33 26 6 1 71 22 +49 84
2 Girona 33 22 5 6 69 40 +29 71
3 Barcelona 32 21 7 4 64 37 +27 70
4 Atletico Madrid 33 20 4 9 62 39 +23 64
5 Athletic 33 16 10 7 53 33 +20 58
6 Real Sociedad 33 13 12 8 46 35 +11 51
7 Betis 32 12 12 8 40 38 +2 48
8 Valencia 32 13 8 11 35 34 +1 47
9 Getafe 33 10 13 10 41 45 -4 43
10 Villarreal 32 11 9 12 51 55 -4 42
11 Osasuna 32 11 6 15 37 46 -9 39
12 Alaves 33 10 8 15 31 38 -7 38
13 Sevilla 32 9 10 13 41 45 -4 37
14 Las Palmas 33 10 7 16 30 41 -11 37
15 Vallecano 32 7 13 12 27 39 -12 34
16 Mallorca 32 6 13 13 26 38 -12 31
17 Celta 33 7 10 16 37 50 -13 31
18 Cadiz 32 4 13 15 22 45 -23 25
19 Granada CF 32 3 9 20 33 61 -28 18
20 Almeria 33 1 11 21 32 67 -35 14
Athugasemdir
banner
banner
banner