Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
Davíð Smári: Menn labba ekki nægilega gíraðir inn í seinni hálfleikinn
Heimir: FH liðið er besta liðið í deildinni í að koma til baka
Andri Rúnar: Eftir jöfnunarmarkið vöknum við ekki aftur til lífsins
Sigurvin: Kredit á strákana að finna þetta afl
Chris Brazell: Við voru mikið með boltann en gerðum ekkert með hann
Siggi Höskulds svekktur: Fókusleysi á mikilvægum augnablikum
Magnús Már: Maður hefur séð ýmislegt í boltanum en ég hef sjaldan séð þetta áður
Gunnar Heiðar: Búnir að æfa í sex mánuði fyrir þennan leik
Vigfús Arnar: Var eins og spennustigið væri eitthvað skrítið hjá okkur
Aron Snær: Ætluðum að keyra á þetta og það verður held ég bara okkar mottó
Haraldur Freyr: Mótið tapast ekki eða vinnst í fyrstu umferð
Aníta Dögg bjargaði málunum: Ég lenti klukkan sex í morgun
Árni Freyr hæstánægður eftir sigur ÍR - „Vona að þeir bæti í"
Staða sem á ekki að koma upp - „Átti að spila þangað til klukkan 23:30 í gærkvöldi"
„Við vitum í hverju við erum góðar“
Búin að skora í öllum leikjunum til þessa - „Mín upprunalega staða"
Hugur allra hjá Andreu Marý - „Óþægilegt í alla staði"
„Það var ráðist á hana inn í okkar vítateig“
Skyndiákvörðun að taka skóna af hillunni - „Hvernig gerðist þetta?“
Þriðja tapið í þriðja leiknum - „Óásættanlegt“
   mán 16. júlí 2018 21:55
Kristófer Jónsson
Helgi Sig: Erfitt þegar að staðan er 4-1 í hálfleik
Helgi var að vonum ósáttur með úrslitin
Helgi var að vonum ósáttur með úrslitin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Helgi Sigurðsson, þjálfari Fylkis, var að vonum svekktur eftir 5-2 tap sinna manna í Egilshöllinni í kvöld. Fylkismenn voru lentir 2-0 undir eftir sjö mínútna leik.

„Þetta eru slæm úrslit fyrir okkur. Við komum ekki nógu vel inní þennan leik og erum annan leikinn í röð að fá a okkur tvö mörk á fyrstu mínútunum sem er ekki boðlegt." sagði Helgi eftir leikinn.

KR-ingar voru með öll völd á vellinum í fyrri hálfleik og var staðan 4-1 fyrir Vesturbæingunum þegar að Þóroddur flautaði til hálfleiks. Fylkismenn mættu beittari til leiks í seinni hálfleik.

„Seinni hálfleikurinn var mun betri og menn sýndu að þeir eru tilbúnir að berjast en leikurinn er orðinn ansi erfiður þegar að staðan er 4-1 í hálfleik."

Fylkir situr sem stendur í ellefta sæti deildarinnar með 11 stig en liðið hefur tapað fjórum leikjum í röð. Þeir heimsækja KA á Akureyrarvöll í næstu umferð. Helgi er bjartsýnn fyrir komandi tímum.

„Mér lýst vel á öll verkefni. Við verðum að fara í alla leiki eins og þeir eru úrslitaleikir. Við komum þarna galvaskir til leiks og ætlum okkur bara góða hluti." sagði helgi að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner