Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
banner
   lau 04. maí 2024 12:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Saka fékk skurð eftir tæklingu Christie - Slapp við refsingu
Mynd: Getty Images

Arsenal er með 1-0 forystu þegar síðari hálfleikur er farinn af stað gegn Bournemouth.


Bukayo Saka skoraði markið af vítapunktinum eftir að Mark Travers markvörður Bournemouth braut á Kai Havertz. Atvikið þótti afar umdeilt.

Annað umdeilt atvik átti sér stað fyrr í leiknum þegar Ryan Christie tæklaði Bukayo Saka sem olli því að enski vængmaðurinn fékk vænan skurð á fótlegginn.

Christie fór ansi hátt með fótinn en fékk enga refsingu fyrir það.


Athugasemdir
banner
banner
banner