Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
banner
   lau 04. maí 2024 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Selfoss fær tvær utan félagaskiptaglugga
Björn Sigurbjörnsson þjálfari Selfoss
Björn Sigurbjörnsson þjálfari Selfoss
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfoss hefur bætt við sig tveimur leikmönnum fyrir átökin í Lengjudeild kvenna í sumar.


Hana Rosenblatt er fædd árið 2000 og kemur frá Bandaríkjunum. Hún lék síðast í háskólaboltanum þar í landi.

Sonia Melisa Rada er fædd árið 1990 og kemur frá Kosta Ríka en hún er fædd í Bandaríkjunum. Hún hefur m.a. leikið með Racing Santander á Spáni.

Eins og fyrr segir leikur Selfoss í Lengjudeildinni í sumar en liðið féll úr Bestu deildinni síðasta sumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner