Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
banner
   lau 04. maí 2024 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arne Slot viss um að hann verði næsti stjóri Liverpool
Mynd: Getty Images

Arne Slot verður líklega arftaki Jurgen Klopp hjá Liverpool en hann hefur verið mjög opinn fyrir því að ræða áhuga sinn á að taka við sem stjóri enska liðsins.


Klopp mun hætta með Liverpool eftir tímabilið eins og alþjóð veit en Ruben Amorim stjóri Sporting var lengi vel talinn líklegastur til að taka við af honum.

Nú eru hins vegar háværar raddir um að Arne Slot stjóri Feyenoord muni taka við af Klopp. Slot var spurður út í stöðuna á fréttamannafundi fyrir leik Feyenoord gegn Zwolle á morgun í hollensku deildinni.

„Ekkert hefur verið staðfest ennþá. Ég hef sagt það áður að ég er bjartsýnn að þetta gangi í gegn. Ég veit ekki hvenær það verður en ég býst við því að samningar náist," sagði Slot.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner