Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
banner
   lau 04. maí 2024 12:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Drengurinn og umboðsmaðurinn mega vera sárir"
Mynd: EPA

Estevao 'Messinho' Willian, leikmaður Palmeiras, er undir smásjá Chelsea en Abel Ferreira þjálfari brasilíska liðsins vill alls ekki missa hann.


Messinho er aðeins 17 ára gamall en Fabrizio Romano greinir frá því að hann sé einn af fimm suður amerískum leikmönnum sem Chelsea fylgist grant með.

Ferreira var ansi ákveðinn þegar hann var spurður út í leikmanninn.

„Ég mun biðja forsetan um að selja hann ekki. faðir hans, umboðsmaðurinn hans og drengurinn mega vera sárir. Leyfið honum að vera hjá okkur til 2027. Hann er eitthvað annað. Estevao er eitthvað sem ég hef aldrei séð á mínum ferli," sagði Ferreira.


Athugasemdir
banner
banner
banner