Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25124 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR14.02.2025, 15:55

Grótta fær leikmenn frá Víkingi og KR (Staðfest)

Grótta er laus úr félagaskiptabanni og tilkynnti í dag um komu tveggja nýrra leikmanna. Báðir eru þeir fæddir árið 2005. Hrannar Ingi Magnússon kemur frá Víkingi en hann spilar oftast sem bakvörður. Hann á að baki tvo leiki í Bestu deildinni. Fyrri hluta síðasta tímabils var hann á láni hjá Grindavík. Hann skrifar undir þriggja ára samning við Gróttu.

FRÉTTIR14.02.2025, 13:00

Íslandsmeistararnir komnir með nýjan markmann (Staðfest)

Breiðablik hefur fengið félagaskipti fyrir Katherine Devine en Kate er 23 ára markmaður. Hún er bandarísk en kemur frá Treaty United á Írlandi þar sem hún stoppaði stutt. Hún var nýkomin til Írlands, kynnt sem nýr leikmaður félagsins í síðasta mánuði, úr Vand­er­bilt-háskól­an­um í Nashville þar sem hún hélt marki sínu hreinu 23 sinnum í 59 leikj­um.

FRÉTTIR13.02.2025, 16:00

Sami Kamel aftur til Noregs (Staðfest)

Sami Kamel hefur yfirgefið Keflavík og er genginn í raðir Brattvåg í Noregi á nýjan leik. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net fór Keflavík ekki í samningsviðræður við Kamel eftir síðasta tímabil þegar samningur hans rann út. Sami Kamel er 31 árs sóknarsinnaður miðjumaður sem kom til Kelfavíkur fyrir tímabilið 2023. Hann skoraði sex mörk í 17 deildarleikjum 2023 þegar Keflavík féll úr Bestu deildinni. Á síðasta tímabili skoraði hann fjögur mörk í 19 leikjum með Keflavík í Lengjudeildinni og fjögur mörk í þremur bikarleikjum, mörkin komu gegn verðandi Íslandsmeisturum Breiðabliks í 32-liða úrslitum og ÍA í 16-liða úrslitum.

FRÉTTIR13.02.2025, 15:00

Þorri Mar í Stjörnuna (Staðfest) - „Kem hingað með skýr markmið"

Þorri Mar Þórisson er genginn í raðir Stjörnunnar en hann kemur til félagsin eftir eitt og hálft ár hjá sænska félaginu Öster. Þorri fékk sig lausan frá Öster í vikunni og er mættur í Garðabæ. Þorri er uppalinn hjá Dalvík/Reyni og hóf meistaraflokksferil sinn þar. Hann fór svo í KA, var lánaður í Keflavík og var svo í nokkuð stóru hlutverki með KA tímabilin 2021-23. Þorri er 25 ára bakvörður sem getur spilað báðu megin og samkvæmt heimildum sjá Stjörnumenn hann einnig sem kost í miðvarðastöðuna. Hann er tvíburabróðir Nökkva Þeys sem er í dag hjá Spörtu Rotterdam í Hollandi.

FRÉTTIR13.02.2025, 10:40

Eustace farinn frá Blackburn og tekinn við Derby (Staðfest)

John Eustace er tekinn við sem stjóri Derby og skrifar undir þriggja og hálfs árs samning við félagið. Það vekur athygli því Derby er í fallbaráttu og Eustace var í starfi hjá Blackburn sem var í nokkuð góðri stöðu ofarlega í töflunni. Blackburn er nítján stigum og sextán sætum fyrir ofan Derby. Fyrsti leikur Eustace verður gegn QPR á morgun.

FRÉTTIR12.02.2025, 17:17

Herra Fjölnir ráðinn þjálfari Fjölnis (Staðfest)

Gunnar Már Guðmundsson var í dag ráðinn þjálfari Fjölnis. Hann er oft kallaður Herra Fjölnir en hann lék lengi fyrir félagið á sínum leikmannaferli. Hann tekur við af Úlfi Arnari Jökulssyni sem var látinn fara í byrjun vikunnar. Gunnar Már kemur til Fjölnis frá Þrótti Vogum en hann stýrði Þrótturum í 3. sæti 2. deildar á sínu fyrsta og eina ári með liðið.

FRÉTTIR12.02.2025, 15:30

HK sækir bandarískan miðjumann (Staðfest)

HK hefur bætt við sig nýjum erlendum leikmanni fyrir komandi keppnistímabil. Natalie Wilson er 22 ára sóknarsinnaður miðjumaður frá Bandaríkjunum. Hún spilaði með Penn State í bandaríska háskólaboltanum, þar sem hún spilaði yfir 100 leiki á seinastliðnum fimm árum.

FRÉTTIR12.02.2025, 12:41

Birkir Már til Nacka (Staðfest)

Eins og fjallað hefur verið um síðustu daga er Birkir Már Sævarsson að halda fótboltaferli sínum áfram. Hann var í dag tilkynntur sem nýr leikmaður Nacka FC í Svíþjóð. Liðið er í fjórðu efstu deild Svíþjóðar. Valsarinn varð fertugur í nóvember og tók í fyrra sitt síðasta tímabil með uppeldisfélaginu. Fjölskylda hans flutti til Svíþjóðar fyrir tímabilið 2024 og Birkir er þangað mættur núna. Hann snýr aftur í sænska boltann eftir sjö ára fjarveru en hann lék með Hammarby á árunum 2015-17.

FRÉTTIR11.02.2025, 14:09

KA fær markmann úr sænsku úrvalsdeildinni (Staðfest)

Jonathan Rasheed er genginn í raðir KA en hann kemur til félagsins frá Värnamo í Svíþjóð. Samningur hans við sænska félagið rann út um áramótin. Hann er 33 ára og kemur líklega til með að veita Steinþóri Má Auðunssyni samkeppni um aðalmarkmannsstöðuna. Jonathan er þriðji leikmaðurinn sem bikarmeistararnir fá í sínar raðir í vetur. Hann er fæddur í Gautaborg, og er með norskan ríkisborgararétt. Faðir hans er nígerískur og móðir hans er norsk.

FRÉTTIR11.02.2025, 12:42

Þorri riftir við Öster (Staðfest) - Fer hann í Stjörnuna?

Fjallað var um það í morgun að Þorri Mar Þórisson væri á heimleið frá Öster og sænska félagið tilkynnti í kjölfarið að það og Þorri hefðu náð samkomulagi um riftun á samningi hans við félagið en hann var samningsbundinn út árið 2026. Þorri var í eitt og hálft ár hjá Öster en hann var keyptur frá KA í ágúst 2023. Þorri er 25 ára bakvörður sem er mjög líklega á leiðinni í Bestu deildina. Á <a href="https://www.dv.is/433/2025/2/11/thorri-mar-riftir-samningi-sinum-svithjod-og-gaeti-komid-heim/" target="_blank"> <i>433.is</I></a> var hann orðaður við Val, Stjörnuna, KR og KA en samkvæmt heimildum Fótbolta.net er líklegasta niðurstaðan sú að hann semji við Stjörnuna í Garðabæ.

FRÉTTIR10.02.2025, 18:50

Úlfur rekinn frá Fjölni (Staðfest)

Fótbolti.net hefur fengið það staðfest að Úlfur Arnar Jökulsson hefur verið rekinn sem þjálfari Fjölnis. Það vekur athygli að Fjölnir ráðist í þessar aðgerðir á þessum tímapunkti. Heimildarmaður Fótbolta.net segir að ákveðin deyfð hafi verið yfir liðinu, stemningsleysi og óánægja með umgjörð. Stjórnin hafi talið sig knúna til að taka þessa ákvörðun.

FRÉTTIR10.02.2025, 17:00

Finnbogi Laxdal aftur í Kára (Staðfest)

Finnbogi Laxdal er genginn aftur í raðir Kára eftir að hafa leikið með Haukum í fyrra. Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Kári fær til sín fyrir komandi tímabil en liðið komst upp úr 3. deild í fyrra.

FRÉTTIR10.02.2025, 15:00

Aston Villa krækir í efnilegan Tyrkja (Staðfest)

Aston Villa hefur tryggt sér krafta Yasin Özcan en hann kemur til félagsins í sumar. Kaupin eru frágengin en þar sem félagaskiptaglugginn er ekki opinn þá kemur Özcan ekki fyrr en í sumar. Özcan er tyrkneskur unglingalandsliðsmaður sem kemur frá Kasimpasa í heimalandinu. Hann er 18 ára varnarmaður sem verður 19 ára í apríl. Hann getur bæði spilað sem miðvörður og vinstri bakvörður. Þrátt fyrir að vera ekki orðinn 19 ára hefur hann verið í U21 landsliðinu síðan árið 2023.

FRÉTTIR10.02.2025, 12:40

Bebe til Ibiza (Staðfest)

Bebe, fyrrum leikmaður Manchester United, hefur samið við spænska félagið Ibiza. Hann mun núna spila á partíeyjunni frægu. Bebe, sem er orðinn 34 ára, gekk í raðir Man Utd árið 2010. Það er fræg saga að hann sé eini leikmaðurinn sem Sir Alex Ferguson horfði ekki á spila áður en hann keypti hann. Það var Carlos Queiroz, fyrrum aðstoðarmaður Ferguson, sem mældi með Bebe og Ferguson ákvað að treysta því.

FRÉTTIR10.02.2025, 12:00

Fram fær sænskan sóknarmann (Staðfest)

Hinn 19 ára gamli Jakob Byström er genginn í raðir Fram en hann kemur frá Svíþjóð. Hann er sóknarmaður sem fagnar tvítugsafmæli sínu á morgun. Hann er kominn með leikheimild. Fylgjendur Fram á samfélagsmiðlum tóku eftir því fyrir áramót að Fram <a href="https://www.facebook.com/groups/33913878566?multi_permalinks=10161928992683567&hoisted_section_header_type=recently_seen" target="_blank">auglýsti eftir húsnæði</a> fyrir ungan fótboltamann frá Svíþjóð og er Byström sá maður. Það eru ekki til mikið af gögnum um leikmanninn á netinu en hann hefur verið hjá IFK Stocksund sem er í þriðju efstu deild Svíþjóðar.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.